Það er engu líkara en óstjórnleg reiði yfir því að hafa misst völdin byrgi þeim sín í að láta þjóðarhag ráða í verkum sínum.
Sigurjón Þórðarson.
Sigurjón Þórðarson, þingmaðir Flokks fólksins, skrifar:
Ef farið er yfir útlendingamálin þá liggur það fyrir að núverandi ríkisstjórn hefur á sínum stutta valdatíma komið fleiru í verk en gert hefur verið sl. áratug. Í stað þess að þingmenn Miðflokks og Sjálfstæðisflokks séu að greiða götu frumvarpa þá eru þeir skipulega að leggja stein í götu þeirra. Það eru má á borð við; einföldun framsals sakamanna, afturköllun á alþjóðlegri vernd, faraþega upplýsingar til að treysta landamærin og leigubílafrumvarpið.
Það gera þeir með því að tefja mál með málþófi þannig að þau komast seint til umfjöllunar í nefndum, afflytja góð frumvörp og ráðast að ósekju að ráðherrunum sem leggja þau fram.
…en óstjórnleg reiði…
Það eru fleiri góð mál á leiðinni sem snúa að því að koma upp brottfararbúðum, efla lögreglu og landamæraeftirlit. Miklu veldur sá sem upphafinu veldur.
Það er undarlegt að verða vitni af framgöngu þingmanna Sjálfstæðisflokksins í þessu niðurrifi gagnvart málum sem kjósendur flokksins eru hjartanlega sammála um. Það er engu líkara en óstjórnleg reiði yfir því að hafa misst völdin byrgi þeim sín í að láta þjóðarhag ráða í verkum sínum. Ég gæti trúað því að það sé ekki almennt á vitorði heitustu fylgismanna Miðflokksins að núverandi útlendingalög sem verið er að bæta eru afrakstur þverpólitískrar nefndar sem sett var af stað á valdatíma Sigmundar Davíðs sem forsætisráðherra.
Almennt má segja um þær breytingar sem gerðar voru fyrir áratug að þær hafi lengt málsmeðferðartíma og borað gat á skilvirkni kerfisins.