Lilja Rafney Magnúsdóttir, Flokki fólksins, mælti fyrr í dag fyrir lagafrumvarpi um stjórn fiskveiða, eða strandveiðar. https://www.althingi.is/altext/156/s/0586.html
„Ég treysti því að þingheimur styðji vel við strandveiðar sem hafa vissulega hleypt miklu lífi í sjávarbyggðir vítt og breitt um landið og þar sem ég veit að þingheimi öllum er mjög umhugað um veikari sjávarbyggðir, eins og hefur komið fram í umræðum undanfarið, þá er þetta mál sem við getum öll sameinast um að standa við bakið á og efla og tryggja þessar umhverfisvænu veiðar út sumarið eins og alltaf var til ætlast þegar 48 daga kerfið var sett á 2019 og aflamagn yrði tryggt í þær veiðar.
Þetta eru þær umhverfisvænustu veiðar sem hugsast getur og engin ástæða til annars en að lyfta þeim upp og tryggja atvinnu í sjávarbyggðum og þjónustu við þessa grein í sjávarplássunum, sem hefur virkilega sýnt fram á að skiptir máli. Það telur allt í atvinnu víða um land og eitt spillir ekki fyrir öðru heldur er þetta samlegðaráhrif sem eru mjög mikilvæg, að fjölbreytileikinn fái að njóta sín í sjávarbyggðunum og að þær auðlindir sem eru fyrir utan byggðirnar geti nýst sem best heimamönnum og geti skapað líka atvinnu á viðkomandi svæðum og tryggt atvinnu yfir sumartímann eins og hefur sýnt sig í mörgum fiskvinnslum þar sem vantar hráefni.
Strandveiðarnar hafa vissulega staðið undir því að tryggja hráefni yfir sumartímann þegar kannski stærri útgerðir hafa ekki verið að veiðum og hafa verið búnir að nýta sínar aflaheimildir og ekki verið starfandi. Ég treysti því að við getum klárað þetta mál hratt og vel,“ sagði Lilja Rafney.