- Advertisement -

SDG: „Ég er afskaplega gramur“

„Hvers vegna? Vegna þess að þetta eru popúlistar.“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

Alþingi geymir fjöldan allan af málþófsræðum stjórnarandstöðunnar. Hér er sýnishorn af málflutningi Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins:

„Ég er afskaplega gramur yfir því hversu títt það er orðið að ríkisstjórnir samþykki, keyri í gegn mál þar sem menn geta gefið sér að málið muni ekki ganga upp og jafnvel hafa neikvæð áhrif. En ákvarðanirnar eru samt teknar vegna þess að þær byggjast bara á umbúðum og yfirlýstum markmiðum en ekki innihaldinu og raunverulegum áhrifum málanna, og þannig er það með málið sem við ræðum hér. Látum vera með markmiðið, það að auka tekjur ríkisins af sjávarútvegi. Það er án efa hægt. En það blasir við að aðferðin er til þess fallin að stuðla að samþjöppun í greininni, að veikja samkeppnisstöðu minni og meðalstórra fyrirtækja og stefna þannig byggðarlögum í hættu. Heilu byggðarlögunum er með þessu stefnt í hættu en um leið er skapaður aukinn og reyndar mjög sterkur hvati til að fiskurinn sé unninn erlendis í ríkisstyrktum verksmiðjum. Þetta er norska leiðin sem fulltrúar ríkisstjórnarinnar státuðu sig af framan af þar til einhverjar auglýsingar fóru að fara í taugarnar á þeim. En norska leiðin er þessi, að miða kostnaðinn við veiðarnar sjálfar og svo vinna það upp með ódýrri vinnslu í útlöndum.

Stjórnarliðar vilja sem minnst ræða innihald þessa máls eða afleiðingarnar og umbúðamennskan nær svo langt að þeir geta ekki einu sinni talað út frá því sem þó kemur fram í frumvarpinu sjálfu. Það nær svo langt að þeir tala jafnvel í andstöðu við það sem kemur fram í frumvarpinu sjálfu. Til að mynda er því haldið fram hér að ekki sé um skatt að ræða og þar af leiðandi ekki skattahækkun. En það stendur skýrt í umbúðunum sjálfum sem ráðherra þessarar ríkisstjórnar lagði fram að það sé ágreiningslaust að um skatt sé að ræða og þar af leiðandi skattahækkun. Margir stjórnarliðar, líklega flestir miðað við umræðu um þetta mál, virðast einfaldlega ekki vera með það á hreinu hvað er í frumvarpinu. Þeir tala alla vega ekki um innihaldið. Þeir tala ekki um innihaldið vegna þess að þeir eru popúlistar. Þeir nota stikkorð síendurtekið; réttlæti, sanngirni, eðlilegt endurgjald o.s.frv., og aðstoðarmenn ráðherra og þingflokka hamast við það að deila þessum stikkorðum á samfélagsmiðlum, ekki að ræða innihaldið eða svara fyrir það. Ríkisstjórninni hefur ekki einu sinni tekist að gera greiningu á áhrifum málsins, heildargreiningu, og allra síst fyrir sveitarfélögin sem eins og ég nefndi áðan eiga þó mörg á hættu að lenda í verulegum kröggum vegna þessa máls, jafnvel að því marki að byggð geti verið ógnað. En stjórnarliðar telja sig ekki þurfa að ræða heildaráhrifin. Hvers vegna? Vegna þess að þetta eru popúlistar.“

Áhugasamir geta lesið alla ræðuna hér.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: