„Ég þakka Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir þessa stórfurðulegu fyrirspurn“
„…að leggja niður héraðsdómstólana og þar með æðstu starfsmenn dómstólanna á landsbyggðinni.“
Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknar.
„Ég hef oft dáðst að hæstvirtum félagsmálaráðherra, formanni Flokks fólksins, í baráttu sinni og flokksins fyrir bættum kjörum þeirra sem minna hafa og einnig fyrir að taka í raun og veru upp hanskann fyrir þá sem þurfa að berjast við eitthvert ójafnræði. Þess vegna hefur það vakið nokkra furðu mína að Flokkur fólksins, flokkur hæstvirts félags- og húsnæðismálaráðherra Ingu Sæland, hefur í áherslum nýrrar ríkisstjórnar verið að leggjast gegn landsbyggðinni, verið að samþykkja að slá af átta sýslumenn á landsbyggðinni, að slá af heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga og þar með eina átta, níu framkvæmdastjóra á landsbyggðinni, að leggja niður héraðsdómstólana og þar með æðstu starfsmenn dómstólanna á landsbyggðinni. Þarna erum við komin í einhverja 30 af þeim embættismönnum ríkisins sem eru með æðstu stöður og sýslumenn auðvitað efstir þar,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar, á Alþingi.
Hann hélt áfram:
„Það tók þó steininn úr þegar hæstvirtue. mennta- og barnamálaráðherra tilkynnti í gær öllum framhaldsskólum landsins að nú skyldu þeir lagðir niður, ekki hver og einn heldur skólameistararnir settir undir einhvers konar millistjórnsýslustig, fjögur til sex, það er óljóst hvað verður, án nokkurs samráðs. Þá er bætt við einhverjum 15–20 af æðstu embættismönnum ríkisins og erum við þá komin í einhverjar 45 af þeim stöðum sem ríkið heldur á. Þetta gerist á sömu dögum og okkur er gert ljóst að hlutfall opinberra starfa er hæst hérna á höfuðborgarsvæðinu og æðstu embættismenn ríkisins starfa allir hér. Þetta hefur vakið furðu mína og mig langar til að spyrja hæstvirtan félags- og húsnæðismálaráðherra hverju þetta eiginlega sæti.
Inga Sæland mætti í ræðustól:
„Ég þakka háttvirtum þingmanni Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir þessa stórfurðulegu fyrirspurn því að hún heyrir annars vegar undir mennta- og barnamálaráðherra og hins vegar undir dómsmálaráðherra. Í ljósi þess að háttvirtur þingmaður hefur mikla þingreynslu, líka sem ráðherra, þá veit hann mætavel að þegar mál eru á frumstigi og verið er að kynna þau þá eru þau yfir höfuð að taka miklum breytingum í meðförum þingsins. Í lok dags þá er það Alþingi Íslendinga sem á síðasta orðið um öll mál sem hingað koma inn. Svo gætir ákveðins misskilnings um það sem við vorum að fá kynningu á einmitt frá hæstvirtum mennta- og barnamálaráðherra í gær, um þessar fyrirhuguðu breytingar á framhaldsskólastiginu. Þær eru aðallega þær að skólameistarar verða skólameistarar, skólastjórar verða skólastjórar — ég átta mig ekki alveg á því hvað háttvirtur þingmaður á við. Kerfisbreytingin felst aðallega í því að létta í rauninni á stjórnsýslu fjármála skólanna hvers um sig og koma með miðlæga grunna út um kjördæmin og líka á höfuðborgarsvæðinu.“
Inga var ekki hætt:
„Hvað lýtur að sýslumönnunum og öðru slíku þá bara bið ég háttvirtan þingmann vinsamlega að beina slíkum fyrirspurnum til hæstvirts dómsmálaráðherra því að það er, eins og annað hér, á frumstigum og í vinnslu og kemur fyrir þing og fastanefndir og þar verður í rauninni lokaafgreiðsla mála og hér í þingsal væntanlega. Þannig að ég segi: Mér þætti líka vænt um ef háttvirtur þingmaður kæmi bara með eitthvað af þeim málum sem heyra beint undir mig sem er félags- og húsnæðismálaráðherra. Ég er með öldrunarþjónustu, nýbúin að koma fram nýju almannatryggingakerfi. 1. september síðastliðinn, er með skipulagsvald og ýmislegt annað og þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila. Þarna er ég náttúrlega á heimavelli, háttvirtur þingmaður, og þætti vænt um að slíkar fyrirspurnir bærust til mín.“