Þrátt fyrir hærri veiðigjöld halda stærri útgerðir áfram að kaupa þær minni
eð fólki hvernig hann ætlar að skipta innan þessa fiskveiðiárs því sem á eftir að skipta.“
Jón Gunnarsson Sjálfstæðisflokki.

„Það er alger óvissa hjá þessum útgerðum í dag. Sumir komast hreinlega ekki á sjó og afleiðingar breytinga á veiðigjaldi hér frá síðasta sumri og svo þetta til viðbótar eru að leiða til þess að mjög víða, ég er búinn að heyra þrjú eða fjögur dæmi um litlar útgerðir sem þegar eru búnar að selja sig; tvær á Snæfellsnesi, ein í Grindavík og ein fyrir austan. Þetta eru útgerðir sem eru kannski með svona um 100 þorskígildistonn og hafa síðan byggt afkomu sína á því að geta verið með línuívilnun, geta jafnvel verið með hlutdeild í byggðakvóta og síðan nýtt strandveiðarnar þann tíma sem þær hafa verið og eru jafnvel með einhverjar grásleppuveiðar. Þessi fyrirtæki eru horfin í hendur á stærri fyrirtækjum,“ sagði Jón Gunnarsson Sjalfstæðisflokki í þingræðu.
Hann spurði líka: „Spurningin er líka hvenær ráðherrann ætlar að opna það og deila því með fólki hvernig hann ætlar að skipta innan þessa fiskveiðiárs því sem á eftir að skipta. Nú hefur eingöngu verið úthlutað til Byggðastofnunarbyggðakvóta. Það eru mjög margar smærri útgerðir sem bíða og afkoma þeirra byggir hreinlega á því að fá byggðakvótaframlög sem eru mjög dreifð víða um landið úr almenna byggðakvótanum. Við vitum af þeim mikilvæga þætti sem rækju- og skelbætur eru, sérstaklega við Breiðafjörð og reyndar við Skjálfanda.“