- Advertisement -

Segir skoðun sína ekki skipta máli

„Því það er stórfrétt, virðulegi forseti, ef hér er komin ríkisstjórn þar sem ráðherrar samþykkja mál sem þeir telja vera stjórnarskrárbrot.“

Guðlaugur Þór Þórðarson.

„Er hæstvirtum ráðherra alvara? Hann sagði á hæstvirtu Alþingi, hann sagði þingi og þjóð að þetta væri stjórnarskrárbrot og dregur ekki í land með það. Hæstvirtur ráðherra þarf að útskýra það út af margítrekuðum yfirlýsingum sínum hvort hann hafi skipt um skoðun eða hvort hann telji þetta enn þá vera stjórnarskrárbrot. Því það er stórfrétt, virðulegi forseti, ef hér er komin ríkisstjórn þar sem ráðherrar samþykkja mál sem þeir telja vera stjórnarskrárbrot. Hjá öllum þeim þjóðum sem við berum okkur saman við myndi þetta aldrei ganga eftir,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson þegar hann og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra tókust á um bókun 35.

„Það sem ég ætlaði að segja var að ég samþykkti málið út úr ríkisstjórn og ég samþykkti það líka út úr þingflokknum til þinglegrar meðferðar. Það er líka alveg kristaltært að málið mun nánast örugglega fara fyrir Hæstarétt Íslands í dómsmáli og það verður Hæstiréttur Íslands sem kveður upp úr um það hvort lög brjóti stjórnarskrána, hvort þetta frumvarp brjóti stjórnarskrána, ekki einstakir þingmenn,“ sagði Eyjólfur.

Guðlaugur Þór greip framm í og sagði þá: „Hver er skoðun ráðherrans?“

Skoðun mín er sú…“

Eyjólfur hélt áfram: „Það er grundvallaratriði. Ég skal útskýra skoðun mína aftur, hugsunin var þannig að það vita allir af þessum vandamálum varðandi einsleitni á innri markaði EES. Þetta mál var leyst á sínum tíma með 3. gr. laga um EES-svæðið. Það var gert. Það var það breitt ákvæði að það var talið innifela bókun 35. Það hefur ekki sýnt sig, m.a. í dómi í máli Harðar Einarssonar og í fleiri málum þar sem Hæstiréttur hefur þrengt 3. gr. aftur.“

Enn var gripið framm í: „Skoðun!“ 

Eyjólfur: „Skoðun mín er sú að ég styð þetta mál. Ég samþykkti það úr ríkisstjórn og samþykkti það úr þingflokknum.“

Aftur var gripið frammí. „…stjórnarskrá!“

Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti þingsins: „Gefa ræðumanni hljóð.“

Eyjólfur reynir aftur: „Ég taldi rétt að þetta mál færi fyrir EFTA-dómstólinn, ekki fyrir Hæstarétt Íslands. Núna mun það ekki fara fyrir EFTA-dómstólinn, þetta mál, verði frumvarpið samþykkt heldur mun það fara fyrir Hæstarétt Íslands og það er Hæstiréttur Íslands sem kveður á um það. Skoðun mín skiptir ekki máli í þessu máli þegar búið er að samþykkja lög.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: