- Advertisement -

Segir efnahgsstjórnina vera fjölskyldumál

„Gæðasamfélag verður ekki byggt á lánsfé til lengdar.“

Sandra Sigurðardóttir, varaþingmaður Viðreisnar.

Alþingi: „Á undanförnum árum hefur hallarekstur hins opinbera haft raunverulegar afleiðingar, ekki aðeins í bókhaldslegum skilningi heldur í beinum áhrifum á líf fjölskyldna. Hærri vextir, meiri verðbólga og aukinn vaxtakostnaður ríkissjóðs þýðir einfaldlega minna svigrúm til að fjárfesta þar sem þörfin er mest. Það er kjarninn í þeirri stefnu sem hér er lögð áhersla á, að snúa forgangsröðuninni við. Það er verkefni núverandi ríkisstjórnar,“ sagði Sandra Sigurðardóttir, varaþingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi, á Alþingi.

Sandra vandaði fyrri ríkisstjórn ekki kveðjurnar. Hún sér miklar breytingar á efnahagsstjórninni hjá núverandi ríkisstjórn. Lesum áfram:

„Hver króna sem fer í vaxtagreiðslur vegna uppsafnaðs halla er króna sem er hvorki í þjónustu íbúa landsins né í uppbyggingu innviða. Hún fer ekki í að stytta biðlista, efla snemmtæka íhlutun eða tryggja jafnræði í þjónustu óháð búsetu. Þess vegna er efnahagsleg ábyrgð ekki aðeins fjármálalegt markmið, hún er fjölskyldumál. Með aðgerðum ríkisstjórnarinnar í þeim stöðugleika sem hún hefur skapað í efnahagsumhverfinu, ásamt því að greiða niður skuldir, fer raunverulega meira fé í geðheilbrigðismál, í menntakerfið, í viðhald og uppbyggingu innviða sem halda samfélaginu okkar gangandi. Slík fjárfesting skilar sér margfalt til baka í betri lífsgæðum, meiri atvinnuþátttöku og sterkari framtíð barnanna okkar.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Og endum á þessu:

„Gæðasamfélag verður ekki byggt á lánsfé til lengdar. Það verður byggt á ábyrgri hagstjórn, stöðugleika og skýrri forgangsröðun þar sem fjármunir fara fyrst og fremst í fólk, þjónustu og innviði, ekki í vaxandi vaxtareikning ríkissjóðs. Forgangsröðum fyrir fjölskylduna og þá grunneiningu sem allt okkar samfélag byggist á.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: