Umræðan: Þröstur Ólafsson skrifaði fína grein um að sem mun vera að gerast í viðskiptalífinu:

Stórhöfðingjastjórn ríkti hér öldum saman. Sá tími var bæði langur og aumur.
Það er mikilvægt að hlusta vandlega þegar fjármálamenn fara í viðtal. Þeir sem skv. málvenju gildis síns, eru jafnan fáyrtir og knappir í orðavali. Þeir fá þó málið ef þeir vilja koma mikilvægum skilaboðum á framfæri á tíðinda tímum. Þanng tíma göngum við nú í gegnum.
Í síðasatliðinni viku var talað við (RUV) stjórnarmann í Hitaveitunni á Reykjanesi sem er einkavædd. Hann hvatti eindregið til einkavæðingar Orkuveitu Reykjavíkur. Sama gerði Heiðar Guðjónsson sjárfestir. Þeir eru að nesta hægri frambjóðendur fyrir komandi borgrstjórnarkosningar. Í kvöldfréttum sjónvarpsins (RUV miðvikudagskvöld) var stjórnarformaður Arion banka heimsóttur og boðskapur hans fluttur landsmönnum. Einkavæðið Landsbankann (Lb). Hann truflar samkeppnina á bankamarkaði, því hann gerir lægri arðsemisskröfur til markaðsins en hinir bankarnir! Banki eða orkufyrirtæki skal hafa þann eina tilganga að hámarka gróðann og sá gróði skal lenda í höndum einkaaðila, helst þeirra sem eiga hina bankana. Reksturinn skal taka mið af hæstu arðsemiskröfu. Hver skyldu nú borga það? Lántakendur, með sem hæstum vöxtum og mestum vaxtamun inn- og útlána.
Nái þetta fram að ganga munu fjármálafurstarnir ásamt stórútgerðarmönnum eignast auðlindir landsins og stjórna því bak við tjöldin óháð ríkisstjórnum. Við sjáum fyrirmyndina vestan hafs. Það verða ekki reglur ESB, sem munu hafa hér völd í framtíðinni, heldur ný stétt Sameinaðra auðmanna (SA). Stórhöfðingjastjórn ríkti hér öldum saman. Sá tími var bæði langur og aumur. Viðvarandi undirokun.