- Advertisement -

Forræðishyggja!

Samfélag sem heimilar frjálsar, óhindraðar umferðarreglur á sviði viðskipta, verður fljótt vanskapað.

Þröstur Ólafsson.

Umræðan: Þröstur Ólafsson hagfræðingur skrifaði:

Það var fróðlegt að lesa kálf Moggans s.l. fimmtudag. Iðnþing Íslendinga bauð til samkomu. Nú skyldu stormar framtaksemi sveipast um ganga samfélagsins og gólf heimilanna. Hreinsa þurfti sérhverja fyrirstöðu á athafnafrelsi í landinu. Oddhvössum spjótum var skotið markvisst að vofunni gamalkunnu. sem gengið hefur, eins og afturgöngum sæmir, undir heitinu forræðishyggja.

Dapurlegt orð og smitgjarnt. Var fyrirsát athafnasemi; Tafði eða hindraði mannaferðir og hvers konar samfélagslega umferð. Hraðahindrun er hugtak úr samtímanum sem snertir okkar daglega líf. Mönnum sem ætíð flýta sér, eins og ritari, bölva í hljóði, en halda áfram för. Síðan koma hliðin.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Gönuhlaup tíðarandans eða ofbeldi harðstjóra.

Hindranir eru settar víða meðal þjóða sem telja sig siðmenntaðar. Reglur og hefðir móta daglegt líf þeirra og athafnasemi. Reglur eru gjarnan setta til að vernda svo allir geti tekið þátt og notið ávaxtanna. Gönuhlaup tíðarandans eða ofbeldi harðstjóra leiða gjarnan til siðmenningarlegrar afreglunar. Afnema hindranir með tilskipunum. Ekki megi bregða fæti fyrir þá sem vilja hraðari umferð. Gildir einnig fyrir þá sem hæfastir eru eða fengið hafa meðgjöf viðkomandi ægivalds.

Viðskiptalífið er ein af spegilmyndum samfélags okkar. Afar mikilvægt, en þó ein af mörgum. Samfélag sem heimilar frjálsar, óhindraðar umferðarreglur á sviði viðskipta, verður fljótt vanskapað. Margir heltast úr lestinni ; aðrir verða offitun að bráð. Sá ofvöxtur skaðar einkum sé leikvöllurinn lítill.

Við Íslendingar kynntumst ofvextinum sem varð að óskapnaði í athafnafrelsinu á áratugunum fyrir og eftir síðastliðin aldarmót og setti samfélagið út í djúpan skurð. Við brugðumst við og samþykktum margvíslegar hindranir til að hægja á og temja fákana sem rutt höfðu úr vegi öllum hraðahindrunum. Nýjar skarpari reglur áttu að draga úr hættunni á endurtekningu. Sjáum hvað setur.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: