Umræðan: Vilhjálmur Bjarnason, fyrrum þingmaður, skrifar grein í Moggann. Hér er lítið brot af greininni:
Það eru mörg gáfumenni sem ryðjast fram á vellina til að ræða vexti af fjárskuldbindingum. Bestan aðgang að fjölmiðlum eiga félagsmenn í Blaðamannafélagi Íslands, en sá félagsskapur virðist stundum vera undirdeild í Landssambandi íslenskra vitleysinga.
Vextir
Áður en lengra er haldið er rétt að átta sig á eðli vaxta. Einföld skilgreining á vöxtum getur verið eftirfarandi:
Þú gætir haft áhuga á þessum
- Vextir eru greiðsla sem tengist því að taka lán eða lána peninga. Almennt lánar annar aðilinn öðrum aðila fjárhæð, sem kallast lán. Móttakandi aðilinn á að endurgreiða upphafsupphæðina – sem kallast höfuðstóll – ásamt viðbótarupphæð. Þessi viðbótarupphæð kallast vextir.