
Umræðan: Sigriður Ingibjörg Ingadóttir, framkvæmdastjóri BRB, skrifaði í gær:
„Krakkar – það er fössari – þá er gaman að tala smá um tölfræði. Viðskiptaráð og fjármálaráðherra hafa svo miklar áhyggjur af ríkisstarfsmönnum. Það er svo vont að fara áhyggjufullur inn í helgina svo ég ákvað að gleðja strákana með fínni mynd Já, ég veit – þetta heitir náungakærleikur
Opinberu starfsfólki hefur fjölgað mun minna en öðrum á vinnumarkaði og eru því hlutfallslega færri núna en þau voru árið 2019. Íbúum landsins hefur samt fjölgað mjög mikið og þjóðin er að eldast sem þýðir að fleiri þurfa þjónustu. Þess vegna er álagið á opinbert starfsfólk alltaf að aukast. Strákarnir eru reyndar ekkert að mæla það en afleiðingarnar eru mannekla, aukin starfsmannavelta og veikindi
Ég hvet strákana til að setja plötu á fóninn, hvíla sig um helgina og gyrða sig svo í brók og fara að gera eitthvað af viti. Ég held svo bara áfram að leiðrétta vitleysuna í þeim – með almannahagsmuni og náungakærleik að leiðarljósi.“