- Advertisement -

Mogginn og Sigmundur Davíð saman gegn múslimum

Um þetta snýst öll pólitík Sigmundar Davíðs og Miðflokksins.

Stjórnmál: Sveinn Andri Sveinsson lögmaður skrifaði:

„Sigmundur Davíð og Mogginn halda áfram rasista- og útlendingshatursrantinu sínu í því skyni að afla Miðflokknum fylgis.

Miðflokkurinn stendur fyrir nákvæmlega ekki neitt nema Sigmund Davíð og hans egó. Sigmundur er þokkalega klár, en í stað þess að sinna sínum störfum í þinginu, hvar hann mætir illa og hefur ekki haft svo við að fylla út hagsmunaskráningu, er hann upptekinn við að búa til einhver mál sem höfða til fordóma og haturs í garð útlendinga. Um þetta snýst öll pólitík Sigmundar Davíðs og Miðflokksins.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Væri til ærlegur þráður í Sigmundi Davíð og Miðflokksnefnunni, myndu hann og flokkurinn mótmæla hástöfum hópmorði (þjóðarmorði) Ísraels á Palestínumönnum í Gaza, stríðsglæpum Ísraels, aðskilnaðarstefnu stjórnvalda í Israel, fangelsun Palestínumanna án dóms og laga, misþyrmingum í fangelsum og sífelldum brotum ísraelskra landnema gegn innfæddum Palestínumönnum á Vesturbakkanum og nú síðast nýjum lögum sem samþykkt voru á Knesset, sem leiða í lög dauðarefsingar, en þau lög eiga bara við um Palestínumenn.

Nei, nei, í staðinn hneykslast Sigmundur Davíð og Mogginn á því að hryðjuverkasamtökin Hamas hafi fagnað þeirri sjálfsögðu ákvörðun íslenskra stjórnvalda að taka þátt í málshöfðun fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag gegn Ísraelsríki. Hvaða máli skiptir það?

Ef Sigmundur Davíð og Miðflokkurinn hefðu vott af samkennd og sjálfsvirðingu, en væru ekki uppfull af múslimahatri, þá stæðu þau með ríkisstjórninni og Þorgerði Katrínu, sem hafna því að sýna hryðjuverkastjórninni í Israel einhverja meðvirkni og stuðning í sínum glæpaverkum.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: