ff7.is: Á fréttavefnum FF7 er merkileg frétt. Ekki síst fyrir að ráðafólk á Íslandi las rangt í tölur um viðskipti við Bandaríkin:
„Það fæst ekki rétt mynd af íslenskum lyfjaútflutningi í gagnagrunni Hagstofunnar því þær lyfjahliðstæður sem Alvotech selur til Bandaríkjanna eru færðar til bókar hér á landi sem útflutningur til Bretlands, Þýskalands og Sviss.
Ástæðan er sú að í þessum þremur Evrópulöndum er endanlega gengið frá vörunum frá Alvotech áður en þær fara vestur um haf. Bandaríski tollurinn færir hins vegar kassana frá Alvotech til bókar sem íslenskan innflutning.
Þetta er ein helsta ástæða þess að íslensk stjórnvöld töldu vöruskiptajöfnuðinn við Bandaríkin vera okkur í óhag í fyrra og því væri engin hætta á viðbótartollum frá Bandaríkjaforseta.
Það mat reyndist hins vegar ekki rétt því ráðgjafar Trump styðjast auðvitað við bandarískar hagstofutölur en ekki íslenskar eins og FF7 fór yfir á sínum tíma.
Nú hafa bandarísk stjórnvöld birt gögn um utanríkisverslun nýliðins árs og samkvæmt þeim dróst innflutningur frá Íslandi lítillega saman í fyrra. Hann var þó miklu meiri en árið 2023 eins og sjá má.
Meginskýringin á þessari aukningu á milli áranna 2023 og 2025 er fyrrnefndur lyfjainnflutningur frá Íslandi. Hann hefur aukist hratt og í fyrra var verðmæti íslensku lyfjanna hærra við bandarísk landamæri en allt íslenska sjávarfangið. Það er mikil breyting frá því sem áður var.
Lýsi og aðrar vörur sem unnar eru úr aflanum eru ekki hluti af verðmæti sjávarfangsins í tölum bandarísku hagstofunnar.“
