„Burt með þessa ríkisstjórn, ekki seinna en STRAX.“
Ragnar Gunnarsson.
Stjórnmál: Ragnar Gunnarsson, söngvari Skriðjökla, er ekki sáttur við aðgerðir ríkisstjórnarinnar, og skrifaði:
„Amma mín kenndi mér ungum að sýna þakklæti og auðmýkt þegar vel væri við mig gert. Reynt eftir fremsta megni að gera það. „Valkyrjurnar“ sendu mér fallega afmælisgjöf í tilefni dagsins, billegra eldsneyti og grútmyglað loforð um lægri verðbólgu og vaxtalækkanir, hvoru tveggja lamið niður með öflugri sleggju . Í fyrstu var þakklætið og auðmýktin alger, en eftir að hafa „SKOÐAÐ Í PAKKANN,“ fóru að renna á mig tvær grímur.
Tökum dæmi:
- Meðalverð á bensínlítra fyrir 1. maí 2026 kr. 225.
- Verð á bensínlítra eftir lækkun vsk. í 11%, 202 kr.
- Lækkun bensínverðs á lítra 23 kr.
Miðað við 18.000 km. keyrslu á ári (1.500 km. á mán), eyðsla 7 l. á hundraðið, skilar þetta einstaklingi frá maí- ágúst u.þ.b. eftirfarandi upphæð:
- 6000/100 = 60 x 7 lítrar á hundraðið = 420 lítrar x 23 kr (lækkun) = 9.660.- kr.
- Þetta skilar láglauna ræfli tæplega 2.500.- kr á mán.
- Útkoman fyrir dísel bíl er u.þ.b. sú sama, lækkun á lítra c.a. 25 kr.
Hverjir hagnast nú mest á þessu „ÖRLÆTI“ ríkisstjórnarinnar? Jú millarnir sem aka um á öflugustu bílunum, borga sama kílómetragjaldið, eyða tvöfalt meira eldsneyti og eru mestu umhverfissóðarnir. Ef eitthvað er „Pissa í skóinn sinn hagfræði,“ þá er það þessi aðgerð. Líklega ein spaugilegasta afmælisgjöf sem ég hef fengið um dagana.
Burt með þessa ríkisstjórn, ekki seinna en STRAX.“

e.s. Þess má geta að einn ráðherranna í ríkisstjórnin var hér áður fyrr dansari í Skriðjöklum, en sá er Logi Einarsson. Hér eru þeir i miklu stuði. Ragnar syngjandi og Logi, lengst til hægri, raddar og dansar.