Sigurjón Magnús Egilsson:
Nú verður allt þetta ráðafólk að gjöra svo vel og gyrða sig í brók og gera betur. Víða í samfélaginu er nóg til til að taka af. Fólk og fyrirtæki sem munar sama og ekkert um ögn meiri álögur. Ekki sækja endalaust á það fólk sem á bágast með að verja sig.
„Ekki kom mér til hugar að ég myndi enda lífshlaupið sem fátækt gamalmenni.“ Þetta sagði eldri maður við mig fyrir nokkrum árum. Hann hafði unnið verkamannavinnu alla sína starfsævi. Samviskusamur og duglegur.
Nú ert hart tekist á um afkomu eldra fólks. Þau sem um svona fjalla, Alþingi, ríkisstjórn, Seðlabanki, fjármálaráð og aðrir eru á því að ekki sé unnt að koma til móts við fólkið, fólkið sem var svift tengingu lífeyris og lægstu launa. Allt þetta ágæta fólk finnur enga aðra leið til að verja ríkissjóð en beerja áfram á þeim sem minnst hafa. Oj, bara.
Lesum hluta þess sem sem fjármálaráð hefur um þetta að segja:
„Í þessu samhengi er rétt að benda á að hámark útgjaldavaxtar sem stöðugleikareglan miðast við var ákvarðað áður en lögin um vísitölutengingu almannatrygginga voru samþykkt. Það útgjaldasvigrúm sem stjórnvöld töldu sig hafa áður en lögin voru samþykkt er ekki lengur til staðar í ljósi þeirrar varanlegu útgjaldaaukningar sem lagabreytingin felur í sér. Fjármálaráð telur því að hér sé um forsendubrest að ræða sem kalli á endurskoðun útgjaldaþaks til lækkunar.“