
Sigmundur Ernir Rúnarsson alþingismaður:
Ísland er ekki land einsleitninnar. Eða viljum við fara til baka? Viljum við gera Ísland gamalt og grátt að nýju? Viljum við það eða kjósum við fjölbreytileikann? Frú forseti, ég segi já.
Alþingi:Sigmundur Ernir Rúnarsson Samfylkingu sagði á Alþingi fyrr í dag:
„Óttinn við litríkasta fána landsins í vissum kreðsum þjóðarinnar er ærinn og mikill. Hann er sum sé of fyrirferðarmikill á landinu, þessi fáni. Hann er of fyrirferðarmikill í skólum landsins. Hver eru skilaboðin? Fólk er fyrir. Samfélagið á ekki að vera fyrir alla. Þetta er gamalkunnur, forneskjulegur málflutningur. Við viljum lifa í samfélagi sem gerir ráð fyrir öllum þegnum þess. Eða viljum við það ekki? Eigum við að óttast fánann áfram? Hvað er í húfi? Jú, mannréttindabarátta síðustu 50 ára eða svo. Sjálfur var ég með Herði Torfasyni hjá Leikfélagi Menntaskólans á Akureyri fyrir 50 árum þegar hann fékk náðarsamlegast að setja upp sýningu á Akureyri vegna þess að hann var búinn að vera atvinnulaus um áraraðir.
Ríkisútvarpið var búið að banna lögin hans í útvarpinu, hann fékk ekki að setja upp eina einustu sýningu og hann greip til þeirra ráða að flýja land, fyrsti Íslendingurinn sem opinberaði samkynhneigð sína. Það var tvennt annað í boði, að vera áfram í felum eða taka líf sitt eins og Hörður Torfason hefur lýst yfir í sinni sögu.
Við eigum ekki að tala niður til fólks, viðkvæmasta fólks landsins, barna sem eru að velta fyrir sér kynhneigð sinni, velta fyrir sér framtíð sinni. Við eigum ekki að taka niður fánann. Það skulum við aldrei gera. Við skulum viðurkenna að Ísland er land fjölbreytileikans. Ísland er ekki land einsleitninnar. Eða viljum við fara til baka? Viljum við gera Ísland gamalt og grátt að nýju? Viljum við það eða kjósum við fjölbreytileikann? Frú forseti, ég segi já.“