Þjóðin hefur upplifað það á eigin skinni alla tíð og það þarf enga blaðagrein til að segja okkur Íslendingum það en kannski gott fyrir umheiminn að fá að vita þetta í erlendum fréttum hvernig alþingi Íslendinga hefur verið stýrt í þágu sérhagsmuna af fámenningsveldinu.
Vigfús Ásbjörnsson.
Stjórnmál/sjávarútvegur: Vigfús Ásbjörnsson, strandveiðisjómaður á Höfn í Hornafirði, skrifar:
„Viðreisn er vonlaus flokkur og þjóðin ætti að gjalda varhug við það sem flokkurinn hefur fram að færa. Fámenningsveldið og spillinginn sem fram kom í grein Berlinske Tidene á augljóslega Viðreisn með húð og hári. Daði Már segir núna að spillingin sé í Namibíu en ekki á Íslandi!
Er manninum alvara eða er hann að reyna að gaslýsa af þjóðina? Hanna Katrín Friðriksson sjávarútvegráðherra, að nafninu til, kom fram í kjölfar greinarinnar og talar um að umfjöllunin í Berlinske sé einhliða!
Af hverju er ennþá verið að svindla á ísprósentu?
Daði Már og Hanna Katrín þurfa ekkert að vera að reyna að segja þjóðinni að raunveruleikinn um fámenningsveldið og spillinguna hér á landi sé ekki eins og hann er. Þjóðin hefur upplifað það á eigin skinni alla tíð og það þarf enga blaðagrein til að segja okkur Íslendingum það en kannski gott fyrir umheiminn að fá að vita þetta í erlendum fréttum hvernig alþingi Íslendinga hefur verið stýrt í þágu sérhagsmuna af fámenningsveldinu.
Af hverju er enn í dag útgerðum leyft að stunda milliverðlagningu á fiski? Af hverju er ekki gert upp við sjómenn á markaðsverði í dag? Af hverju er heimvigtunarleyfi enn leyft í dag sem augljóslega skapar freistnivanda á vigtunarsvindli? Af hverju er ennþá verið að svindla á ísprósentu? Af hverju er það enn leyft að gjöld til sveitarfélaga af lönduðum afla í höfnum landsins séu miðuð við verðlagstofuverð í flestum tilfellum í stað raunverulegs fiskverðs? Af hverju er verðlagstofa yfir höfuð til í dag? Af hverju eru sumum útgerðum leyft að vera yfir kvótaþakinu?
Af hverju hefur Daði, Hanna Katrín og ríkistjórnin ekki losað sig við allar strengjarbrúður fámenningsveldisins út úr ráðaneytunum? Það er það fyrsta sem Péter Magyar nýkjörinn forsætisráðherra Ungverjarlands sagðist ætla að gera eftir að hann vann stór sigur þar í kosningum nýverið auk þess sem hann sagði að svikarar við þjóð sína verði dregnir til ábyrgðar. Strengjarbrúður fámenningsveldisins eru enn út um allt stjórnkerfið á Íslandi þrátt fyrir að hér hafi orðið svokölluð hrein stjórnarskipti í landinu við síðustu kosningar. Viðreisn, Daði Már og Hanna Katrín sem er búin að vera sjávarútvegsráðherra frá stjórnarskiptum ætla ekki neinu að breyta þó svo þau láti eins og þau séu í ríkistjórn breytinganna vegna. Nei, Hanna Katrín og Daði Már, verk ykkar og verkleysi benda einhliða til þess að fámenningsveldið eigi ykkur með húð og hári eins og allan þinglokk Viðreisnar. Kominn er tími til að kjósendur ykkar átti sig á því. Þjóðin á betra skilið en verklausan sjávarútvegráðherra og fjármálaráðherra sem reynir að gaslýsa þjóðina. Þjóðin veit betur!“