Allt er þetta gert í dagsbirtu og hvergi í samfélaginu er raunverulegur vilji til að taka á þessum ófögnuði.
-ritstj.

Alþingi: Eydís Ásbjörnsdóttir Samfylkingu spurði Hönnu Katrínu Friðriksson um verð á landaðri loðnu á síðustu vertíð:
Þar kemur fram að verðið hér á landi er einungis þriðjungur þess sem það er í Færeyjum. Þarna munar óhemju miklu, sem skiptir eflaust milljörðum króna. Sömu fyrirtæki eiga veiðiskipin og vinnslurnar. Þær ráða því verðinu eina og sér.
Með þessu háttarlagi rýrnar ekki bara hlutur sjómanna. Nei, ekki aldeilis. Skattgreiðslur til ríkis og sveitarfélaga eru allt aðrar og lægri en ella væri. Allt er þetta gert í dagsbirtu og hvergi í samfélaginu er raunverulegur vilji til að taka á þessum ófögnuði.
„Eftirfarandi fyrirvarar eru gerðir við svarið:
Reglulegur frestur til að skila vigtar- og ráðstöfunarskýrslum til Fiskistofu er allt að einum mánuði og 20 dögum. Þar sem landanir loðnu á yfirstandandi fiskveiðiári eru að mestu síðustu tvo mánuði er ekki hægt að tryggja að um sé að ræða heildstætt yfirlit yfir verðmæti og ráðstöfun aflans.
Samkvæmt kjarasamningum sjómanna og útvegsmanna frá 6. febrúar 2024 byggist uppgjör til sjómanna á uppsjávarveiðum á umsömdu hlutfalli af áætluðu skilaverði afurða. Fyrirtæki hafa síðan allt að tvo mánuði til að skila lokauppgjöri til sjómanna. Það verð sem kemur fram í vigtar- og ráðstöfunarskýrslum, innsendum til Fiskistofu og sem þessi gögn byggja á, getur breyst eftir að lokauppgjör liggur fyrir.
Birting eða frekari miðlun á sundurliðun niður á fyrirtæki gæti verið háð takmörkunum, m.a. vegna samkeppnissjónarmiða.“
