- Advertisement -

Að færa heilsársstörf yfir í sumarstörf

Að bæta í þann pott án þess að samsvarandi aukning komi í stóra pottinn.

Hanna Katrín Friðriksson.
Hanna Katrín Friðriksson og Ólafur Adolfsson.
Myndir: Alþingi.

Alþingi: Umræður meðal annars um fiskveiðar:

„Varðandi sjávarútveginn þá langar mig líka til að nefna gamlan draug, sem eru strandveiðarnar. Nú veit ég að hæstvirtur ráðherra hefur losað sig við þann hluta en mig langar samt til að fá álit ráðherra á því að við séum að taka út úr stóra kerfinu og lána inn í byggðapottana, í rauninni að lána inn í strandveiðihlutann.

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Það finnst mér ekki vera raunhæft til lengdar.“

Nú er það þannig, alla vega í mínum huga, að þegar verið er að færa fisk úr línuívilnuninni, úr sértæku og almennu byggðakvótunum, þá er í rauninni verið að færa heilsársstörf yfir í sumarstörf. Mig langar til að heyra afstöðu ráðherra til þessa. Ég læt þetta duga að sinni,“ sagði Ólafur Adolfsson Sjalfstæðisflokki.

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra svaraði Ólafi:

„Varðandi strandveiðar og sveigjanleikann þá er innbyggður sveigjanleiki í stóra kerfinu þar sem menn færa á milli ára. Ég veit að þetta er ekki fyllilega samanburðarhæft en þó nægilega til þess að ég geti sagt að ég get alveg lifað með því að búa svo um hnútana að það sé slíkur sveigjanleiki í litla kerfinu sem heyrir undir annan ráðherra, svo lengi sem það er tryggt að það komi til baka þannig að við séum ekki jafnóðum og smám saman, eins og reyndar hefur verið gert undanfarin ár, að bæta í þann pott án þess að samsvarandi aukning komi í stóra pottinn. Það finnst mér ekki vera raunhæft til lengdar.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: