Alþingi: Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, tók til máls á Alþingi og gerði að umræðuefni verðlagningu á fiski, eins og getið er um á Miðjunni fyrr í dag:
„Ég vil byrja á því að þakka háttvirtum þingmanni Eydísi Ásbjörnsdóttur fyrir fyrirspurn um verð á landaðri loðnu af sömu veiðisvæðum til frystingar á Íslandi annars vegar og í Færeyjum hins vegar. Jafnframt vil ég ekki síður þakka hæstvirtum atvinnuvegaráðherra fyrir skýr svör sem bera með sér að pottur er brotinn varðandi verðlagninguna hér á landi.
Svör hæstvirts ráðherra sýna að verðið sem greitt var hér fyrir loðnu á Íslandi sé um þriðjungur af því sem greitt var í Færeyjum fyrir sömu loðnu. Þetta þýðir að hlutur sjómanna og hafnargjöld hefðu átt að vera þrefalt hærri á síðustu vertíð. Það er alveg ljóst að þessi undirverðlagning hefur bein áhrif á sjóði ríkis og sveitarfélaga og mun hafa veruleg áhrif á veiðigjöld næsta árs. Það má ganga að því sem vísu að afurðaverð Íslendinga og Færeyinga sé svipað og því þarf að rannsaka hvar hagnaður af undirverðlagningu á landaðri loðnu er losaður. Er það í vinnslunni eða er það í sölufyrirtækjum, jafnvel á erlendri grundu?“
Sigurjón hélt áfram:
Ógagnsæið er ólíðandi…
„Engin vestræn þjóð gæti sætt sig við það ógagnsæi sem ríkir um verðlagninguna hér á landi. Hér er við lýði einhver milliverðlagning á helstu útflutningsafurð þjóðarinnar. Ógagnsæið er ólíðandi þegar haft er í huga að þarna er um að ræða verðlagningu á sameiginlegri auðlind þjóðarinnar. Sum þessara fyrirtækja eru á markaði þar sem alla jafna eru gerðar ríkar kröfur um upplýsingagjöf og gagnsæi. Á síðustu dögum hefur það heldur betur komið í ljós að erlendir miðlar fylgjast með því hvernig kaupin gerast á eyrinni. Það eru ekki aðeins nágrannar okkar og vinir, Danir og Færeyingar, sem fylgjast með okkur heldur einnig fjölmiðlar, stjórnmálamenn og almenningur í Namibíu. Ég treysti því, frú forseti, að stjórnvöld bregðist við þessum upplýsingum af festu. Ég tel persónulega eðlilegast að aðskilja veiðar og vinnslu fjárhagslega. Jafnframt ætti að tryggja að ákveðinn hluti af öllum afla og aflaheimildum af Íslandsmiðum fari á uppboðsmarkað.“