Framsetning mín var röng. Það voru mín mistök og ég ber ábyrgð á þeim.
Jón Pétur Zimsen.
Alþingi: Jón Pétur Zimsen dregur nokkuð í land með orð sín:
„Ég vil nota þetta tækifæri til að bregðast við þeirri umræðu sem skapast hefur í kjölfar færslu sem ég birti á samfélagsmiðlum síðastliðið sunnudagskvöld. Færslan fór öfugt ofan í marga og það með réttu. Það þykir mér mjög miður. Sá skilningur sem hefur verið lagður í færsluna var ekki í samræmi við það sem ég vil standa fyrir né það sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir. Með henni vildi ég ekki gera lítið úr rétti kvenna til menntunar, atvinnuþátttöku eða sjálfstæði þeirra. Orðavalið „árþúsunda náttúruval“ var rangt, særandi og gaf aðra mynd af afstöðu minni en ég ætlaði og biðst ég innilegrar afsökunar á því. Ég vil segja skýrt að ég tel hvorki jafnrétti, menntun né frelsi kvenna vera vandamál. Frelsi kvenna til að mennta sig og starfa, stofna fjölskyldu, eignast börn eða ekki og byggja upp eigið líf er sjálfsagður réttur sem á að vera hafinn yfir allan vafa. Með færslunni vildi ég vekja athygli á geðheilsu ungs fólks. Það er málefni sem stendur mér mjög nærri eftir áratuga kennslu og starf með börnum og ungmennum. Ég hef áhyggjur af kvíða, einmanaleika og skorti á tengslum en ég gerði því máli engan greiða með orðalagi mínu. Ætlun mín var ekki að benda fingri á konur heldur að reyna að varpa ljósi á vanda sem hrjáir samfélagið allt. Framsetning mín var röng. Það voru mín mistök og ég ber ábyrgð á þeim.
Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur frelsis en frelsi til að tjá sig fylgir líka ábyrgð. Ef maður orðar hlutina illa þarf maður að viðurkenna það og gera betur. Það ætla ég að gera. Ég vona að við getum áfram rætt geðheilsu ungs fólks af alvöru á grundvelli virðingar, staðreynda og frelsis sem við öll viljum gera.“