- Advertisement -

„Trump er víða og nú í Kópavogi“

Staksteinar: Staksteinar Moggans eru sérstakir. Í dag sem flesta daga. Þeir eru í Kópavogi þennan daginn. Staksteinum er ofboðið að frambjóðandi Samfylkingarinnar skuli andmæla bæjarstjóra Sjálfstæðisflokksins og Kópavogs, Ásdísi Kristjánsdóttur.

Jónas Már og Ásdís bæjarstjóri ræða við.

„Sjálfsagt er að frambjóðendur takist efnislega á, það er nauðsynlegt. En það var hvorki stjórnmálum né lýðræðinu til framdráttar að Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri fengi vart komið orði að án þess að nýliðinn Jónas Már Torfason, oddviti og ættarlaukur Samfylkingarinnar, gripi fram í fyrir henni.“

Þarna er skotið, en langt yfir markið. Vítaskyttur vita að það á að draga andann áður en skotið er.  

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Ekki er því miður óalgengt að stjórnmálakonur verði fyrir slíkum yfirgangi, en það er ekki aðeins ofríki gagnvart þeim, heldur ókurteisi við kjósendur að leyfa þeim ekki að heyra hvað andstæðingurinn hefur að segja.“

„Má hér rifja upp „gluggaskrautið“…

Má hér rifja upp „gluggaskrautið“ en þannig nefndi Mogginn Katrínu Jakopsdóttur þegar hún tók við formennsku í VG af Steingrími Joð.“  Hvað má kalla þá vitleysu alla.

„Eftirtektarverðast var þó að Jónas Már lét sér ekki nægja að vera ósammála Ásdísi eða segja hana hafa rangt fyrir sér, heldur vændi hana hvað eftir annað um „lygar“. Að bæjarstjórinn færi með vísvitandi ósannindi gegn betri vitund.“

Eru Staksteinar búnir að greina allt það sem Ásdísi sagði? Kannski fór hún rangt með á einum stað eða fleirum.

Í lok Staksteina sést að Mogginn hefur nú snúið bakinu að fyrrum uppáhalds, sjálfum Donald Trump.

„Íslensk stjórnmál hafa til þessa verið blessunarlega laus við þess háttar orðháka og orðræðu, þar sem menn úthúða andstæðingum. Trump er víða og nú í Kópavogi.“

Held að fullyrða megi að íslensk stjórnmál séu ekki laus við þannig orðháka. Þó vissulega hafi fækkað ögn í þeim hópi.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: