Þess vegna er bráðabirgðaákvæði um að hækka ekki laun meira árlega en um 3,5%, m.a. til að skapa gott fordæmi í þeirri stöðu sem við erum í núna.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.
Alþingi: Kristrún Frostadóttir svarar hér Stefáni V. Stefánssyni Framsóknarflokki, því sem hann sagði í fréttinni, hér að framan.
„Það er rétt að í gegnum tíðina, þar með talið þrisvar sinnum í tíð síðustu ríkisstjórnar, hefur verið ákveðið að kippa inn til skamms tíma ákveðnum breytingum á launum æðstu ráðamanna í staðinn fyrir að fara í þá kerfisbreytingu sem nauðsynleg var.
Hér síðasta sumar sagði ég réttilega að mér hugnaðist ekki að við værum sífellt í slíkum skammtímaskírnum og -lausnum. Það er nákvæmlega ástæðan fyrir því að frá síðasta sumri hefur verið starfandi vinnuhópur sem hefur haft það hlutverk að koma af stað langtímasamkomulagi eða skilningi allra aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um hvaða viðmið og hvaða launavísitölu við eigum að miða við. Sú skýrsla er komin út. Það frumvarp er klárt.
…að hækka ekki laun meira árlega en um 3,5%…
Ég hef rætt það frumvarp við formenn allra flokka á þingi. Það er kerfisbreyting sem stendur til að mæla hér fyrir. Það vill hins vegar til að það tekur tíma að innleiða kerfisbreytinguna sem lagar launavísitöluna. Þess vegna er bráðabirgðaákvæði um að hækka ekki laun meira árlega en um 3,5%, m.a. til að skapa gott fordæmi í þeirri stöðu sem við erum í núna.
Ég get ekki tekið undir það að það sé verið að fara sömu leið og áður. Það er nákvæmlega verið að gera hið öfuga. Það er verið að fara í kerfisbreytingar sem kallað hefur verið eftir, langtímasýn og þriggja ára sýn hvað varðar hverjar hækkanir verða. Hingað til höfum við í þessum sal verið sammála um að við séum einhuga í þessum ákvörðunum vegna þess að þetta er auðvitað viðkvæmur málaflokkur.
Ég vil hins vegar segja varðandi formlegar viðræður að það er farið af stað þríhliða samtal á milli stjórnvalda, SA og ASÍ. Síðast í gær fundaði þjóðhagsráð á mjög góðum fundi þar sem við vorum m.a. sammála um að við þyrftum að finna leiðir til að horfa í gegnum þessi Hormússundsáhrif á verðbólguna vegna þess að það sem er áhugavert við töluna í gær er að þrátt fyrir að eldsneytisverð hafi farið hækkandi þá lækkaði verðbólga heilt yfir á Íslandi í síðasta mánuði sem þýðir að aðrir liðir eru ekki að hækka jafn mikið og væntingar stóðu til.“
Þessi frétt er framhald af fréttinni hér að framan.