„Fólk hefur gefist upp á lýðræðinu. Það treystir á valdamikinn aðila sem ekki er hægt að kjósa í burtu til þess að leysa úr málunum.“
Haraldur Ólafsson formaðir Heimssýnar.
Stjórnmál: Haraldi Ólafssyni, veðurfræðingi og formanni Heimssýnar, er heitt í hamsi vegna hugsanlegrar aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Ekki nóg með að hann segi stuðningsmenn aðildarviðræðna hata lýðræðið, þá segir hann að allt verði gert til að koma í veg fyrir að viðræðunum verði.
Hann gefur í skyn að til ofbeldis geti komið ef Ísland gengur í Evrópusambandið í viðtali við enskumælandi fjölmiðil. Hann segir stuðningsmenn aðildar „hata lýðræðið eins og pestina“.
Haraldur var til viðtals í Reykjavík Grapevine.
Í viðtalinu segir Haraldur algerlega ljóst að allt verði lagt í sölurnar til þess að koma í veg fyrir að Ísland gangi í sambandið og sömuleiðis til þess að koma því þaðan út ef af aðild verður.
„Ég er ekki ofbeldisfullur maður.“
„Ég er ekki ofbeldisfullur maður og mun tala gegn ofbeldi ef það kemur til tals, en það er alls kyns fólk sem hefur mjög sterkar skoðanir á þessu máli og ég veit ekki til hvaða örþrifaráða það tekur. Ég bara veit það ekki,“ segir Haraldur við blaðið.
„Þetta lið hatar lýðræðið eins og pestina. Þetta snýst um að afnema lýðræðið á Íslandi. Ríkisstjórnin vill að við göngum í ESB og það þýddi endalok lýðræðis eins og við skiljum það,“ segir Haraldur.
Stuðningsmenn aðildar hafi gefist upp á sjálfstjórn Íslendinga yfir eigin málefnum. „Þetta lið hatar lýðræðið eins og pestina. Þetta snýst um að afnema lýðræðið á Íslandi. Ríkisstjórnin vill að við göngum í ESB og það þýddi endalok lýðræðis eins og við skiljum það,“ segir Haraldur.
„Fólk hefur gefist upp á lýðræðinu. Það treystir á valdamikinn aðila sem ekki er hægt að kjósa í burtu til þess að leysa úr málunum.“