
Dagur B. Eggertsson alþingismaður:
Þessi þrjú dæmi sýnist mér í fljótu bragði leggja sig á ekki lægri upphæð en 80 milljarða. Það virðist því ljóst að tölurnar í skýrslunni eru mjög varfærið mat.
Umræðan: Dagur B. Eggertsson skrifar:
Skýrsla um eignarhald 20 stærstu útgerðarfélaga landsins í íslensku atvinnulífi var birt í gær. Hún var gerð af Hagfræðistofnun Háskóla Íslands að beiðni minni og annarra þingmanna.
Stóra myndin í skýrslunni:

- 20 stærstu útgerðir landsins og eigendur þeirra áttu samtals eignir í öðrum fyrirtækjum fyrir 406 milljarða króna í lok árs 2024.
- Útgerðirnar hafa eignast yfir 60 prósent af þessum eignum frá 2014, á tíu árum. Þær hafa fjárfest fyrir 239/274 milljarða króna á því tímabili.
Eignir hafa þjappast saman inni í þessum samstæðum:
- Þrjár stærstu útgerðirnar áttu eignir upp á 207 milljarða króna, eða meira en helming eigna 20 stærstu.
- Fjórar stærstu áttu eignir upp á 271 milljarð króna, eða 2/3 af öllum eignum 20 stærstu.
- Sex stærstu áttu 333 milljarða króna, eða 82 prósent af eignum 20 stærstu.
Skortur á gagnsæi og ótrúlegt flækjustig gerir erfitt fyrir að fá heildarmynd. Það sem m.a. vantar:
Eignarhald eigenda sjávarútvegsfyrirtækja er oft falið, eða fyrirkomið í flóknu neti fyrirtækja og eignarhaldsfélaga. Af þekktum dæmum er eignarhald virðist ljóst að úttekt Hagfræðistofnunar er ekki tæmandi yfirferð yfir eignir stærstu eigenda stærstu útgerða.
Hér að neðan koma þrjú dæmi:
- Ein stærsta heildsala á Íslandi er ÓJ&K-ÍSAM ehf. Hún er endanlega í helmingseigu Kristins ehf, fjárfestingafélags í eigu Ísfélagsfjölskyldunnar sem átti eignir upp á 53 milljarða króna í lok árs 2024. Ekki er tekið tillit til Kristins ehf. í samantekt Hagfræðistofnunar.
- Hrólfssker ehf. er félag í eigu Samherja- og Gjögursfjölskyldna. Það heldur á stærsta einstaka hlutnum í Sjóvá. Ekkert er minnst á Hrólfsker né Sjóvá í gögnunum um Gjögur þótt það sé minnst á það í gögnum um Samherja.
- Samherjafjölskyldan á félag sem heitir Seley ehf. sem er stærsti einstaki eigandinn í Eimskip. Hvorki er minnst á Seley né Eimskip í skýrslunni.
Þessi þrjú dæmi sýnist mér í fljótu bragði leggja sig á ekki lægri upphæð en 80 milljarða. Það virðist því ljóst að tölurnar í skýrslunni eru mjög varfærið mat.
Það sem mér finnst við þurfa að fá að vita í kjölfarið:
- Það þarf að taka þetta skrefinu lengra og kortleggja allar eignir stærstu eigenda stærstu útgerða – til að fá betri heildarmynd.
- Það þarf að greina í hvaða geirum hafa útgerðirnar nákvæmlega fjárfest og hvar er hætta á samþjöppun og fákeppni
- Það þarf að gegnumlýsa samþjöppun í sjávarútvegi því skilgreiningar á tengdum félögum eru greinilega mjög sérstök í lögum um stjórn fiskveiða
Fleira? Orðið er laust:
Hér má lesa frétt Vísis um málið.