
mbl.is: Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks í Reykjavík lagði í gær fram tillögu um breyttar fánareglur við stjórnsýsluhús borgarinnar, sem er á dagskrá á fyrsta fundi nýrrar borgarstjórnar á þriðjudag.
„Þetta er ráðhúsið í höfuðborg Íslands, þar eiga að öllu jöfnu aðeins að blakta fánar Íslands og Reykjavíkur,“ segir Hildur Björnsdóttir, verðandi borgarstjóri.
Fánar Úkraínu og Palestínu hafa blakt við ráðhúsið að undanförnu, en áformað er að þar verði framvegis aðeins íslenski fáninn dreginn að húni daglega.
Þú gætir haft áhuga á þessum