- Advertisement -

Mun Dagur fella Kristrúnu af stalli?

Formaðurinn sem áður hvatti flokksmenn til að strika Dag út í síðustu kosningum og sagði hann yrði í algjöru aukahlutverki í þingflokknum.

Björn Valur Gíslason.

Stjórnmál: Björn Valur Gíslason, togaraskipstjóri og fyrrum alþingismaður skrifaði:

„Það er að teiknast upp sérstök staða í tveim stærstu stjórnmálaflokkum landsins.

Annars vegar í Sjálfstæðisflokknum sem hefur verið í stöðugu falli undanfarin ár og engar vísbendingar á lofti um að hann væri að ná vopnum sínu, þar til Hildur Björnsdóttir leiddi flokkinn fram til stór sigurs í borginni. Fylgið ríkur upp í kjölfarið, flokkurinn er að mælast stærsti stjórnmálaflokkur landsins og stuðningsfólk hans virðist sátt. Þetta er nokkuð sem formaður flokksins virtist ekki líkleg til að ná að fram.

Hins vegar er það Samfylkinginn þar sem Dagur B. Eggertsson stendur upp úr. Hann er áberandi talsmaður flokksins í mörgum stórum málum og gerir það vel á meðan formaður flokksins virðist ekki höndla mótlætið vel og lætur lítið fyrir sér fara. Formaðurinn sem áður hvatti flokksmenn til að strika Dag út í síðustu kosningum og sagði hann yrði í algjöru aukahlutverki í þingflokknum, fellur nú í skuggann af þeim þaulreynda stjórnmálamanni sem Dagur B Eggertsson er. Þau hafa skipt um hlutverk.

Það munu augljóslega ekki líða mörg ár þar til forystuskipti verða í Sjálfstæðisflokknum. Hvort það sama muni gerast í Samfylkingunni er erfiðar að spá fyrir um en það gæti hæglega gerst ef fram fer sem horfir.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: