- Advertisement -

Hættum að taka við umsóknum um hæli

Miðflokkurinn mun ekki leggjast gegn þessu máli.

„Þetta er flókið og viðamikið mál í grunninn, verið að stofna til eins konar fangelsis vegna ólöglegrar dvalar. Miðflokkurinn mun ekki leggjast gegn þessu máli enda hafa verið færð fyrir því skynsamleg rök að í núverandi ástandi sé þetta illnauðsynlegt úrræði.

Mun betur færi á því, og við tökum það fram í þessari umræðu, á litla Íslandi, sem er fullvalda eyríki, að hætta frekar að taka við umsóknum um hæli hér á Íslandi, eins og Miðflokkurinn hefur ítrekað lagt til. Þá þyrftum við ekki sífellt að vera að plástra hinn manngerða vanda sem fylgir vandræðunum á landamærunum og kostar samfélagið fleiri milljarða á ári.

Og það er annað í þessu, kostnaðaráætlunin í þessu er sannarlega óraunhæf. Það þarf ekki annað en að koma á svona stað til að sjá að þarna er um mikið óyndisúrræði að ræða og verður yfirleitt mun verra en áformin standa til og benda til.

Þú gætir haft áhuga á þessum

En það er vonandi að regluleg skýrslugjöf muni geta gefið okkur ljósa mynd af þessu máli. En maður óttast að áður en maður veit af verði þetta komið í sama óefni og fangelsin eru nú þegar. Miðflokkurinn leggst ekki gegn málinu en situr hjá.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: