Stjórnmál: Klemens Ólafur Þrastarson skrifaði:
„Íslenska þjóðin stendur á krossgötum. Við þurfum að fá arðinn af auðlindum og tryggja þjóðareign á þeim í stjórnarskrá. Við þurfum að jafna leikinn í atvinnulífinu með jöfnu aðgengi að lánum og lægri vöxtum. Og við þurfum að létta á byrðum heimilanna með heilbrigðari lánakjörum. Við þurfum meiri samkeppni. Við þurfum minni fákeppni og við þurfum að passa að áhrif, eignir og völd safnist ekki enn frekar á örfárra hendur.“ Svo mælti Dagur B. Guevara, byltingarsinnaðasti þingmaður Íslands.
Mogginn vill ekki að Dagur B. Eggertsson skrifi lengur í blaðið, því hann er að tala um raunverulega kjarabaráttu, þessa sem fjöldi svokallaðra vinstrimanna telur ekki nógu hipp og kúl. Jafnvel talsmenn launþega þegja um þjóðaratkvæðagreiðsluna, eða klæðast heilagri skömm á nýfrjálsu „stríðsæsingarfólki“ sem vill geta varist innrás Pútíns. Eitt er víst. Verkalýðsfélaginu þínu er sama um þig. Það vill óbreytt ástand í sínu kvótakóngaríki.“