Að tvístra þessum verðmætum er ekki bara heimska, það er vitfirring

Umræðan Ragnar Önundarson skrifaði:
Í hádegisfréttum Rúv í dag var frétt um að Ísland væri enn og aftur talið „öruggasta landið“. Hér er mynd frá Alþjóðabankanum, rúmlega 2ja ára. Hún sýnir „lífsgæði“, sem samanstanda af fleiri þáttum en öryggi, augljóslega. Þrjú efstu löndin eru evrópsk, en standa öll utan ESB. Af næstu þremur, sem öll eru í ESB, er aðeins eitt með evru. Það er fjölmennasta ríkið, Þýskaland, sem eitt sinn var efnahagslegt stórveldi, en er nú að veslast upp, efnahagslega.
Ég ætla að segja NEI í ágúst.
Það er nú einu sinni svo, að fólk vill búa við velmegun og ekki gefa hana frá sér. Ég hef skrifað þó nokkuð um mikilvægi þess að við höldum áfram að nota gjaldmiðil sem tekur tillit til sveiflna í náttúrufari og einhæfni okkar efnahagslífs, sem þýðir að gjaldeyrisaflandi fyrirtæki lifa af og láta landið rétta fljótt úr kútnum eftir lægðir. Að láta þau fara mörg í þrot á sama tíma og af sömu ástæðu, er „óðs manns æði.“
Að láta frumkvöðlana og eigendurna verða eignalausa, kjarklausa og framtakslausa, um allt land, allt á sama tíma og af ástæðu sem þeir sem stjórnendur atvinnufyrirtækja geta ekki haft nein áhrif á, yrði langvarandi tjón. Að tvístra þessum verðmætum er ekki bara heimska, það er vitfirring, af því að menn eiga að vita betur. Atvinnufyrirtæki veita fólki ATVINNU!
Atvinnuleysi þýðir að „fyrirvinnur“ fjölda heimila missa tekjur sínar. Á fjölda heimila býr fjöldi fólks. Þetta snýst um velferð fjölda fólks. Ég ætla að segja NEI í ágúst og bið þig að gera það sama.“