„…að fjöldi ellilífeyrisþega í tölu erlendra ríkisborgara hafi fimmfaldast núna á nokkrum árum…“
Rósa Guðbjartsdóttir.
Við erum í aðgerðum um dvalarleyfi.
Alþingi: „Mig langaði aðeins að fá viðbrögð frá hæstvirts dómsmálaráðherra við þeirri staðreynd, sem kom fram í svari við fyrirspurn minni til félags- og húsnæðismálaráðherra og dómsmálaráðherra fyrir nokkrum dögum, að fjöldi ellilífeyrisþega í tölu erlendra ríkisborgara hafi fimmfaldast núna á nokkrum árum og hvort ástæða sé til að skoða þætti þessa máls eitthvað frekar í næstu breytingu á lögum,“ sagði Rósa Guðbjartsson Sjálfstæðisflokki þegar hún spurði Þorbjörgu Sigríði Gunnaugsdóttir dómsmálaráðherra um málefni hælisleitenda.
„Ég byrja kannski á því sem háttvirtur þingmaður endaði á, með hlutfall eldri borgara. Að einhverju marki er þetta afleiðing þess að reglur um dvalarleyfi voru rýmkaðar hér á landi,“ sagði dómsmálaráðherra.
Ég er með fimm frumvörp…
„Reglur um fjölskyldusameiningar voru rýmkaðar hér á landi, t.d. hvað varðar námsmannaleyfi. Háskólastúdent sem kemur til Íslands getur flutt með sér aldraða foreldra sína. Þetta var ákvörðun sem var tekin hér árið 2023 og þetta undirstrikar það sem ég er að reyna að segja, að við erum að læra af reynslunni. Ég er í markvissu samtali við Norðurlöndin öll. Ég er með fimm frumvörp á dagskrá þennan þingveturinn. Við erum í markvissum aðgerðum við að afnema séríslenskar reglur.
Allar aðgerðir, og þetta er kjarnaatriði, verða að byggjast á stefnu, verða að byggjast á heildaryfirsýn. Stóra markmiðið hér, þegar við horfum á tölur, er að þær spegli eitthvert regluverk. Við erum í aðgerðum um dvalarleyfi.
Við erum sannarlega að reyna að læra af reynslu Norðurlandanna og við njótum góðs af því að geta litið til þess hvernig hlutirnir voru þar fyrir áratug,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir.