Dagur B. Eggertsson sagði í Alþingi:

„Á þeim vikum sem ég hef setið á þingi hef ég kynnst mörgu skemmtilegu öðru athyglisverðu og sumu skrýtnu. Það að koma hér saman á sunnudegi er ekki eitt af þessu skrýtna en mér finnst biðlund okkar gagnvart vissum ósiðum á þinginu vera býsna mikil. Ég vil vitna í ræðu manns sem hefur verið miklu lengur ég, Helga Bernódusson, fyrrverandi skrifstofustjóra Alþingis, sem sagði, með leyfi forseta:
„Einn draugur fer þó um þinghúsið og ygglir sig í þingsalnum og er mikil nauðsyn að kveðinn verði niður, rotaður í einu höggi, en það er málþóf. Í mínum huga, sem hef unnið í þinghúsinu í áratugi og stundum þurft að sitja samfellt yfir slíkum draugagangi, er hann tilræði við heilbrigða skynsemi og yfirgangur sem er niðurlægjandi fyrir þingmenn og hina virðulegu stofnun, tilraun til að lama þingið, óbærilegur. Allir flokkar eru sekir í þessu efni.“
Eigum við ekki að laga þetta?“