„Ég er þeirrar skoðunar, og þessi ríkisstjórn í heild er þeirrar skoðunar, að við getum ekki verið að hlaupa undir bagga með stökum fyrirtækjum.“
Kristrún Frostadóttir.
„Ég er þeirrar skoðunar, og þessi ríkisstjórn í heild er þeirrar skoðunar, að við getum ekki verið að hlaupa undir bagga með stökum fyrirtækjum.“
„Það eru víða verkefni. Áður en ég beini fyrirspurn minni til hæstvirts forsætisráðherra langar mig að senda góðar kveðjur til strákanna okkar úti í Svíþjóð sem eru einmitt að fara að takast á við risaverkefni þar,“ sagði Stefán Vagn Stefánsson, Framsóknarflokki og þingmaður í Norðvesturkjördæmi, beindi máli sínu til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra.
Stefán Vagn hélt áfram: „En verkefnin eru víða og okkur er öllum ljóst að staðan í efnahagsmálum landsins er kannski allt önnur en vonir stóðu til við upphaf þessa kjörtímabils. Verðbólgan er þrálátari og er á uppleið, hagvöxtur minni og atvinnufjárfesting sömuleiðis. Því er ljóst, virðulegur forseti, að atvinnulífið stendur frammi fyrir verulegum áskorunum umfram þær sem væntingar höfðu verið gefnar um. Má þar t.d. nefna stóriðjuna, bæði Norðurál, sem er í vanda en leysist vonandi, og Elkem, svo ekki sé minnst á PCC á Bakka. Sjávarútvegur er sömuleiðis, með hærra veiðigjaldi og skertum kvóta, í brekku og þá er ég að tala um, virðulegur forseti, lítil og meðalstór sjávarútvegsfyrirtæki.
Þar er svo sannarlega verk að vinna.
Umræðan um að taka byggðakvóta, sérstakan byggðakvóta og skel- og rækjubætur er svo sannarlega ekki að hjálpa til við þær væntingar sem þessi fyrirtæki eru með. Íslenskur landbúnaður er sömuleiðis í vörn og mikilvægt að nýir búvörusamningar verði með þeim hætti að bændasamtök og íslenskir bændur geti staðið stolt upp frá borði og hafið sókn í íslenskri matvælaframleiðslu. Þar er svo sannarlega verk að vinna. Ferðaþjónustan hefur lýst yfir miklum áhyggjum af stöðunni og má þar rifja upp áhyggjur bílaleiga af nýkomnu kílómetragjaldi og hærra vörugjaldi, áhyggjur sem snerust m.a. um að hækkanir hefðu áhrif á dreifingu ferðamanna út á land.
Það sem þetta á allt sammerkt er að þessi fyrirtæki eru nánast öll úti á landi, fyrir utan áhrifasvæði höfuðborgarinnar. Því er spurning mín þessi: Hvernig ætlar hæstvirt ríkisstjórn að bregðast við þeirri alvarlegu stöðu sem er að teiknast upp gagnvart atvinnulífi á landsbyggðarinni?“
Þannig talaði Stefán Vagn. Enn er hann sá eini sem hefur sagst vilja verða næsti varaformaður Framsóknarflokksimns.
Kristrún Frostadóttir svaraði Stefáni:
„Ég ætla að fá að byrja á að taka undir kveðju hv. þingmanns til strákanna okkar. Ég segi bara: Áfram Ísland.“
Síðan sagði Kristrún: „Ég heyri þessa upptalningu hjá háttvirtum þingmanni og ég hef líka haft áhyggjur af stöðunni, t.d. í stóriðjunni. Þetta er flókin staða og hún er tengd stöðu á alþjóðamörkuðum og sértækum, hvað á ég að segja, áskorunum sem komu upp hjá einstaka fyrirtækjum og eru kannski ekki fyrirsjáanlegar.
Erum að skapa aðstæður fyrir lækkun vaxta.
Ég er þeirrar skoðunar, og þessi ríkisstjórn í heild er þeirrar skoðunar, að við getum ekki verið að hlaupa undir bagga með stökum fyrirtækjum. Við sköpum rekstrarumhverfi en getum ekki verið að hlaupa undir bagga með stökum fyrirtækjum. En í raun fórum við t.d. í ákveðnar aðgerðir til að styrkja umhverfið á Bakka og erum vonandi að sjá núna jákvæðar afleiðingar af því. Við höfum verið í virku samtali við sveitarstjórnina þar til þess að liðka fyrir því sem koma skal eða til að geta gripið fólk á svæðinu ef PCC heldur ekki áfram starfsemi.“
Kristrún var ekki hætt: „Ég vil líka segja að ég skil alveg að það komi upp áhyggjur og að það heyrist raddir þegar það er ráðist í kerfisbreytingar. Þessi ríkisstjórn er að ráðast í kerfisbreytingar, reyndar sem sumar fyrri ríkisstjórnir töluðu um í áraraðir; í ferðaþjónustu, kílómetragjaldi og öðru. Já, við fórum í þessa innleiðingu á veiðigjaldinu og eðlilega heyrast ákveðnar gagnrýniraddir. Það er erfitt að fara í svona kerfisbreytingar. En útgangspunkturinn var fyrst og fremst að skapa stöðu til að sækja fram, ekki vera bara í stöðugri vörn á fyrri kerfum. Við erum að sækja fram. Við erum að loka fjárlagagatinu. Við erum að skapa aðstæður fyrir lækkun vaxta. Við erum að skapa aðstæður til þess að styrkja vegakerfið, styrkja innviðina okkar úti á landi vegna þess að allir sem maður talar við í þeim dreifðu byggðum sem hv. þingmaður er að tala um segja manni í lok dags: Það er sama hvaða fyrirtæki kemur þarna inn, ef vegakerfið stendur ekki undir sér, ef opinbera þjónustan stendur heldur ekki undir sér, þá flytur fólk ekki á svæðin. Þannig að þetta er samvinnuverkefni þessara aðila og við ætlum að vera í sókn, ekki bara í vörn.“
Hér má lesa seinni ræðu Stefáns Vagns og hér er þá seinni ræða Kristrúnar Frostadóttur.