- Advertisement -

Borgarstjóri takmarkar aðkomu minnihlutans að atburðum borgarinnar

Borgarstjórn: Borgarstjóri takmarkar aðkomu minnihlutans að opinberum atburðum borgarinnar

Nýtt ósætti innan borgarstjórnar. Heiða Björg borgarstjóri hefur takmarkað aðkomu minnihlutaflokkanna við atburði borgarinnar. Málið var rætt á síðasta fundi forsætisnefndar Reykjavíkur.

„Fulltrúar Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:

Samstarfsflokkarnir þakka fyrir kynninguna á verklagi í kringum gestalista í opinberar móttökur Reykjavíkurborgar. Í dag er miðað við fulltrúa í borgarráði, borgarritara og fulltrúa þeirra ráða og sviða borgarinnar sem tengjast viðfangsefni móttökunnar. Talið er að núverandi gestalisti endurspegli betur hverja móttöku fyrir sig og þann málaflokk sem um ræðir. Forsætisnefnd telur eðlilegt að ræða og skoða þetta verklag nánar.“

Verðlaun og viðurkenningar eru veitt af allri borgarstjórn.

Þá risu fulltrúar minnihlutans á afturfæturnar og bókuðu:

„Einkennilegt og óásættanlegt er að borgarstjóri hafi ákveðið, upp á sitt einsdæmi, að takmarka aðgang borgarfulltrúa að opinberum móttökum Reykjavíkurborgar, þar á meðal verðlaunaafhendingum á vegum borgarinnar. Reykjavíkurborg er fjölskipað stjórnvald þar sem borgarstjórn starfar sem ein heild og eru móttökur haldnar fyrir hönd allrar borgarstjórnar, ekki einstakra stjórnenda. Samkvæmt samþykktum borgarinnar ber forsætisnefnd ábyrgð á yfirumsjón móttaka og því er óeðlilegt að borgarstjóri taki slíkar ákvarðanir án þess að upplýsa nefndina eða kalla eftir afstöðu hennar. Verðlaun og viðurkenningar eru veitt af allri borgarstjórn, jafnvel þótt borgarstjóri afhendi þau formlega. Það réttlætir ekki að takmarka aðkomu kjörinna fulltrúa að slíkum viðburðum né verður séð að um sparnað sé að ræða. Málið snýst ekki um að einstaka fulltrúar sæki móttökur, heldur ásýnd borgarstjórnar út á við og virðingu við þá einstaklinga og hópa sem hljóta verðlaun frá borginni. Slíkir viðburðir eru ekki einkamál embættismanna heldur formleg framsetning borgarinnar, þar sem viðvera kjörinna fulltrúa skiptir máli. Framganga borgarstjóra í þessu máli vekur áhyggjur af meirihlutaræði og skorti á gegnsæi í stjórnsýslu borgarinnar og grefur undan trausti og samstöðu innan borgarstjórnar.“

Unnið er eftir samþykktri vinnulýsingu…

Meirihlutinn bókaði þá:

„Rétt er að taka fram að opinberar móttökur borgarstjórnar eru á ábyrgð skrifstofu borgarstjórnar og opinberar móttökur borgarstjóra eru á ábyrgð skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Unnið er eftir samþykktri vinnulýsingu um ákvörðun og framkvæmd opinberra móttaka.“

„Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins ásamt áheyrnarfulltrúa Viðreisnar leggja fram svohljóðandi gagnbókun:

Rétt er að taka fram að samkvæmt 1. gr. reglna um móttökur borgarstjórnar kemur fram að opinberar móttökur Reykjavíkurborgar eru formlegar móttökur borgarstjórnar og borgarstjóra. Í 4. gr. sömu reglna kemur þá fram að gestgjafar eru borgarstjóri, forseti borgarstjórnar, formaður borgarráðs, borgarfulltrúar eða staðgenglar þeirra. Rétt er að hafa þetta í huga þegar ákvarðanir eru teknar um boð í móttökur.“
 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: