- Advertisement -

Borgarstjóri vanrækti skyldur sínar

„Hefðu borgarstjóri og borgarritari brugðist við öllum ábendingum hefði braggabruðlið aldrei raungerst.“

Hildur Björnsdóttir Sjálfstæðisflokki skrifar:

Niðurstöður Braggaskýrslunnar draga upp dökka mynd. Nú er unnið að fjórum skýrslum til viðbótar – fjögur framúrkeyrsluverkefni til viðbótar. Hvert málið rekur annað. Stjórnsýslan hefur brugðist. Borgarstjóri vanrækti skyldur sínar og lög voru brotin. Skýrslan tekur af allan vafa.

Á fimmtudag var skipaður þriggja manna hópur sem rýna mun niðurstöður skýrslunnar og vinna tillögur að úrbótum. Sæti í hópnum tóku borgarstjóri og formaður borgarráðs. Það var auðvitað ótækt að meirihlutinn hefði einn aðkomu að þessari vinnu. Af þeim sökum tók ég sæti í hópnum sem fulltrúi minnihlutans – sem fulltrúi skattgreiðenda sem kæra sig ekki um fjálglega meðför almannafjár. Ég gat ekki sætt mig við árangurslausa úrvinnslu þessa máls. Ég vildi taka á því af festu.

Innri endurskoðun skilaði úttekt á skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar (SEA) árið 2015. Úttektinni fylgdu 30 ábendingar og tillögur að úrbótum. Meirihluta þeirra var aldrei sinnt. Hefðu borgarstjóri og borgarritari brugðist við öllum ábendingum hefði braggabruðlið aldrei raungerst. Þetta staðfestir nýjasta skýrslan. Borgarstjóri vanrækti skyldur sínar. Honum bar að hafa heildarsýn yfir rekstur og verkefni SEA. Hann bar að yfirfara veruleg frávik í verkefnum skrifstofunnar. Kostnaðareftirlit var ófullnægjandi. Ábyrgð og forsvar ekki nægjanlegt. Sveitastjórnarlög og innkaupareglur voru brotnar. Allt þetta staðfestir skýrslan.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Stefán brogarritari og Dagur borgarstjóri.

Strax í upphafi gerði minnihlutinn athugasemdir við þátttöku borgarstjóra í úrvinnslu málsins. Eftir nánari lestur hef ég styrkst enn frekar í þeirri afstöðu. Öll þau sjónarmið sem að ofan eru rakin styðja þá niðurstöðu. Skýrslan var áfellisdómur yfir borgarstjóra og enginn er dómari í eigin sök.

Ég mun fara fram á að borgarstjóri víki úr hópnum. Ég hef greint borgarstjóra og formanni borgarráðs frá þessari afstöðu. Verði ekki fallist á þá kröfu tel ég forsendur fyrir trúverðugri vinnu brostnar og mun sjálf gefa sæti mitt laust.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: