- Advertisement -

Brynjar: „Við erum öll kratar“

Alþingi: Brynjar Níelsson á Alþingi fyrr í dag:

„Frelsið er yndislegt, ég geri það sem ég vil, er þekktur frasi. Ég hef komist að því núna að hann er úreltur, ofmetinn. Ég fylgdist með læknaþingi fyrir nokkrum dögum síðan þar sem menn komust að því að rétt væri að hækka áfengiskaupaaldur í 25 ár. Þeir gleymdu því að vísu að mesta vandamálið er drykkja eldri borgara og því hefði verið við hæfi að þeir myndu álykta að það væri hámarksaldur til að kaupa áfengi, t.d. 67 ár. Við erum líka sammála um það að tjáningarfrelsið skiptir orðið afskaplega litlu máli. Fólk er hér í alls konar afneitun í þessu samfélagi. Það þarf að hafa viðurlög við því. Hvaða viðurlög eigum við að hafa við því að menn afneiti því að loftslagslínur séu af mannavöldum? Ætlum við að láta þetta ganga svona endalaust? Ég segi við háttvirtan þmingmann Víði Reynisson: Við erum ekki bara öll almannavarnir, við erum öll kratar.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: