Davíð Oddsson: „Forseti Bandaríkjanna kallar eftir þakklæti og hrósi“

Stjórnmál:
Benedikt Jóhannesson birti eftirfarandi kafla úr Reykjavíkurbréfi Davíðs Oddssonar:
Þegar ég les Reykjavíkurbréf á laugardagsmorgni gleðst ég í hvert sinn að fá Morgunblaðið sent. Ekki svíkur ritstjórinn í dag:
„[H]eimurinn viðurkennir loks, að enginn bandarískur leiðtogi hafi byrjað valdaferil sinn með slíkum glæsibrag, eins og Trump vekur athygli á sjálfur, og hefur raunar vakið sanngjarna athygli á, hvort sem það eru hinir miklu sigrar hans sem enn glampar á en urðu til heima í hans eigin landi, eða um veröldina þvera og endilanga og gátu því varla hafa farið fram hjá neinum læsum manni, eða þeim sem fylgjast bærilega með.
Og vissulega er það svo, að hin fjarlægari lönd og álfur virðast eiga mun léttara með að fagna slíkum sigrum og þakka með eðlilegum fögnuði og gleðibrag, sem þeir verðskulduðu svo sannarlega umfram flesta, og veita þar með Donald Trump forseta þá sanngjörnu viðurkenningu, sem gat varla hafa farið fram hjá nokkrum manni.
…
Hitt blasir einnig við, að forseti Bandaríkjanna kallar eftir þakklæti og hrósi, sem mörgum þykir auðvitað kúnstugt. Annað er, að enginn eða lítill ágreiningur er um að forsetinn verðskuldi þakkir í þessum efnum, sem gætu falist í þakklæti og ódýrri kveðju, sem flestir aðrir myndu láta sér duga.“
Maður lútir höfði í þakkarbæn.