- Advertisement -

Drauma eign fyrir golfara – Spánn

Göngufæri frá La Zenia Boulevard ströndinni

Villa Ara einbýlishúsin eru stórglæsileg 237 fm. nýbyggð einbýlishús á tveimur hæðum og sérlega vel hönnuð og falleg

Á neðri hæð er stór og björt stofa og rúmgóð borðstofa vel tengd eldhúsi með vandaðri og fallegri innréttingu. Úr eldhúsi og stofu er útgengi út á góða verönd og þaðan gengið niður í garð með einkasundlaug. Rúmgott svefnherbergi með skápum og baðherbergi.
Fallegar og stórara verandir auk stórra þaksvala, sem bæta verulega við notkunarrýmið.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Gengið er upp góðan stiga og á efri hæðinni eru tvö góð svefnherbergi, annað með fataherbergi og hitt með skápum og bæði með sérbaðherbergi. Svalir út frá svefnherbergjum. Rúmgóð þakverönd með einstöku útsýni til sjávar.
Mikið rými í kjallara sem býður upp á ýmsa möguleiga, t.d. aukaíbúð, líkamsræktarsal, bíósal eða bílakjallara. Sérgarður með sérsundlaug.

 

Frábær staðsetning í örstuttu göngufæri frá La Zenia Boulevard, ströndinni, ótal verslunum og veitingastöðum og einungis 50 mínútna akstur frá flugvellinum Alicante. Ótal góðir golfvellir í næsta nágrenni.
Hér um að ræða glæsilegt og fallegt einbýlishús á frábærum og fjölskylduvænum stað. Zenia Beach er einstaklega vel staðsett á Costa Blanca ströndinni.
Um 10 mín. gangur er niður á ströndina. Þar eru ótal skemmtilegir veitingastaðir, falleg sandströnd, skemmtilegt strandlíf og göngustígar meðfram allri ströndinni.

Innan við 5 mín. gangur er í nýtt og glæsilega verslunar- og afþreyingarmiðstöð, La Zenia Boulevard. Þar eru ótal vinsælar verslanir, t.d. H&M, Zara, Primark ofl. Einnig fjölmargir góðir veitingastaðir og kaffihús.  Stórt torg þar sem hægt er að horfa á íþróttaviðburði á stórum sjónvarpsskjá, baða sig í gosbrunnum, læra að dansa og hlusta á tónlist.
Skemmtilegt leiksvæði fyrir börnin og ótal margt fleira.
Örstutt göngufæri á vinsælan útimarkað á laugardagsmorgnum.

 

Verð frá 517.000 Evrum (62.000.000 Ikr, gengi 1E=120Ikr), eftir frágangi og útfærslum á rýmum hússins og garði.

Nánari upplýsingar hér


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: