„Það er m.a. gert með því að tryggja réttindi leigutaka með eftirliti með leigusölum og því að nægilegt framboð sé á leigumarkaði þannig að fólk finni húsnæði við hæfi.“
Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir.
Alþingi: „Það er m.a. gert með því að tryggja réttindi leigutaka með eftirliti með leigusölum og því að nægilegt framboð sé á leigumarkaði þannig að fólk finni húsnæði við hæfi.“
„Mig langar til að ræða um leigumarkaðinn á Íslandi í dag, því þó svo við höfum unnið út frá því að fólk eigi að eiga eigið húsnæði hér þá er samt stór hópur sem leigir húsnæði til lengri eða skemmri tíma. Samkvæmt tölum HMS eru um 50.000 heimili á leigumarkaði á Íslandi og spár gera ráð fyrir því að þeim fjölgi um 4.000–6.000 á næstu fimm árum. Þetta er þó ónákvæmt því það er ekki til nein nákvæm skrá yfir leiguíbúðir á Íslandi,“ sagði Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir Samfylkingu á Alþingi fyrr í dag.
„Þeir sem leigja sér þak yfir höfuðið gera það langflestir af nauðsyn, ekki af áhuga. Það er ekki ályktun heldur staðreynd sem á sér skýra stoð í gögnum. Við svona aðstæður skiptir miklu máli að þeir möguleikar sem standa þessum hópi til boða séu á viðráðanlegu verði og sé vel við haldið og mæti þörfum fólks um stærð á húsnæði. Síðast en ekki síst þarf að tryggja fólki fyrirsjáanleika og húsnæðisöryggi. Það er m.a. gert með því að tryggja réttindi leigutaka með eftirliti með leigusölum og því að nægilegt framboð sé á leigumarkaði þannig að fólk finni húsnæði við hæfi,“ bætti hún við og sagði svo:
Það er skýrt hvað stjórnvöld eru að gera.
„Í fyrsta húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar eru fjölmargar aðgerðir sem eiga að ná þessum markmiðum. Það á til að mynda að draga úr skattfrelsi söluhagnaðar og takmarka Airbnb við lögheimili og eina aðra fasteign til að ýta íbúðum inn á markaðinn. Þar að auki á að auka stofnframlög til óhagnaðardrifinna leigufélaga til að fjölga almennum íbúðum. Það verður innleitt fyrirkomulag sem mun koma í veg fyrir að leiguverðshækkun verði á fyrstu 12 mánuðum tímabundinna leigusamninga á sama tíma og skattafsláttur leigutekna verður lækkaður úr 50% í 25%. Það er skýrt hvað stjórnvöld eru að gera. Í gegnum leiguskrá, sem heldur utan um skráningu allra leigusamninga, verður svo hægt að fylgjast með því hvort leigusalar freistist til að velta mögulegum kostnaði vegna aðgerðanna yfir á leigutaka. Gerist það þá liggur fyrir að brugðist verður hratt og ákveðið við. Ef það þarf að gera meira þá gerum við meira.“