- Advertisement -

Eflum löggæsluna

Höfundur: Sigurjón Þórðarson þingmaður Flokks fólksins.

Á síðustu árum hafa ítrekað komið fram upplýsingar um að auðmenn hafi ástundað njósnir gagnvart blaðamönnum og öðrum þeim sem taldir eru ógna hagsmunum þeirra.

Það er mikilvægt að umræðan beinist ekki aðeins að verkfærunum þ.e. Jóni Óttari Ólafssyni, og óheiðarlegu lögreglumönnunum heldur miklu frekar að þeim sem réðu þá til starfa og fjármögnuðu lögbrotin.

Það að setja kastljósið eingöngu á lögregluna þannig að hún sitji uppi með svarta Pétur í málum vegna einstaka óheiðarlegra lögreglumanna, er ekki leiðin til þess að taka á vandanum.

Miklu nær væri að beina sjónum að þeim stjórnmálamönnum sem hafa á liðnum árum gert lítið úr alvarleika mála og jafnvel réttlætt vafasama framgöngu auðmannanna sem í hlut eiga.

Hætt er við því að við réttlætinguna hafi þröskuldurinn orðið lægri hjá þeim aðilum sem eru veikir á svellinu m.a. óheiðarlegum lögreglumönnum að taka þátt í brotastarfseminni en t.d. þröskuldurinn við að aðstoða albönsku mafíuna.

Allar líkur eru á því að þau mál sem hafa komið upp á yfirborðið séu aðeins toppurinn á ísjakanum og að í skuggastarfseminni taki ekki aðeins innlendir aðilar heldur ekki síður erlend fyrirtæki.

Það er því mikilvægt að efla lögregluna og þá sérstaklega erlent samstarf á þessu sviði og skýra ábyrgð og þyngja viðurlög þeirra sem fjármagna lögbrotin.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: