- Advertisement -

„Ég er einfaldur maður“

Bryndís Haraldsdóttir.

„Bryndís Haraldsdóttir stal að einhverju leyti glæpnum af mér þegar hún minntist á Færeyjar. Ég var með háttvirtum þingmanni í heimsókn þar. Þar sá ég nýstárlegar leiðir, í það minnsta fyrir okkur hér, til að jafnsetja allt nám þar sem við gengum fram hjá einni stofu þar sem var verið að kenna stærðfræði og í næstu líffræði og hin næstu smíðar og svo var stór gluggi þar sem var verið að gera við bíl. Ég er mjög hlynntur þeirri hugmynd sem býr að baki þessari tillögu og hef heldur aldrei alveg skilið reglurnar sem hafa verið í gangi, enda er ég einfaldur maður. Einu sinni var það þannig að ef maður var kominn á ákveðinn aldur var hægt að koma í námið og eitthvað slíkt, ég hef aldrei skilið þetta alveg. Fyrir mér er þetta ósköp einfalt mál. Ef fólk hefur færni til að takast á við nám þá á það að fá að takast á við það, alveg sama hverju það hefur lokið fram að því.“

Það var Kolbeinn Óttarsson Proppé sem þannig talaði þegar rætt var um frumvarp um háskóla.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: