Facebook: Helga Vala Helgadóttir skrifaði:
Nú tel ég að það þurfi einhver að koma formanni Sjálfstæðisflokksins til aðstoðar. Ég átta mig á örvæntingunni þar sem fylgið virðist renna af flokknum við hvert örstutt spor forystunnar, en þessi framsetning hennar er bara vandræðaleg „Hvað ætla þau eiginlega að gera? Trúa þau því virkilega að það muni hjálpa íslenskri þjóð að hlaupa inn í brennandi hús Evrópusambandsins.“
Trúir formaður Sjálfstæðisflokksins því í alvöru að hin mjög svo stöndugu ríki Evrópusambandsins séu „brennandi hús“? Finnst henni í alvöru sæmandi stjórnmálamanni sem vill láta taka sig alvarlega að líkja samstarfi fullvalda ríkja eins og Danmerkur, Þýskalands, Belgíu, Frakklands, Svíþjóðar við brennandi hús? Ég skil alveg löngun smærri stjórnmálamanna til að vera með svona yfirlýsingar í von um athygli í fjölmiðlum en svona getur formaður í gömlum og áður stöndugum flokki ekki leyft sér að láta út úr sér.
