- Advertisement -

„Eitt í dag, annað á morgun“

„Er það góð meðferð almannafjár að kaupa ríkislögreglustjóra út úr embætti með pólitískum samningi.“

Jón Pétur Zimsen.

Alþingi: „Hæstvirtur dómsmálaráðherra sagði á RÚV hinn 7. nóvember 2025 um mál ríkislögreglustjóra, með leyfi forseta: Afstaða almennings til málsins er mjög skýr. Viku áður sagði hún í óundirbúnum fyrirspurnum hér á Alþingi: Það er ákveðinn taktur í samfélaginu sem við verðum að lesa rétt. Það er því ljóst að hæstvirtur ráðherra les stemninguna í samfélaginu og lætur hana ráða för fremur en lagalegar forsendur eða stjórnsýsluskyldur. Þannig haga vindhanar sér en ekki hæstvirtir ráðherrar.“

Það var Jón Pétur Zimsen Sjálfstæðisflokki sem talaði þannig á Alþingi.

„Er það góð meðferð almannafjár að kaupa ríkislögreglustjóra út úr embætti með pólitískum samningi sem kostar vel á annað hundrað milljónir á næstu þremur árum þegar engin lagaákvæði kalla á það? Ríkislögreglustjóri óskaði sjálf eftir að láta af embætti, með leyfi forseta: „Ég hef óskað eftir að láta af embætti ríkislögreglustjóra.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Engin lagaákvæði skylda ráðherra til að semja um biðlaun…

Þetta gerir ríkislögreglustjóri sunnudaginn 9. nóvember 2025. Daginn eftir segir í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu: „Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur orðið við beiðni Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur ríkislögreglustjóra um að hún láti af embætti.“

Í óundirbúnum fyrirspurnum sama dag sagði hæstvirtur dómsmálaráðherra hins vegar að ríkislögreglustjóri hefði ekki beðist lausnar. Eitt í dag, annað á morgun. Erum við í þættinum Satt eða logið? Í 37. gr. laga um starfsmenn ríkisins segir að vilji embættismaður biðjast lausnar eigi hann einungis rétt á óbreyttum launakjörum út uppsagnarfrestinn. Engin lagaákvæði skylda ráðherra til að semja um biðlaun, flutning eða nýtt starf þegar embættismaður hefur sjálfur óskað lausnar. Samt er gerður ráðningarsamningur við fráfarandi ríkislögreglustjóra sem kostar á annað hundrað milljónir. Málið snýst ekki um einstaklinga heldur meðferð ráðherra á skattfé almennings og beitingu valds eftir því hvernig vindar blása,“ sagði Jón Pétur Zimsen.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: