- Advertisement -

„Engin þingsköp, engar reglur, bara frekjan ein sem á að ráða“

„Er þessu fólki semsagt ekkert heilagt? Engin þingsköp, engar reglur, bara frekjan ein sem á að ráða. Á dauða mínum átti ég von en ekki því að hinn íhaldssami sjálfstæðisflokkur, sem talað hefur um að „bera virðingu fyrir stofnunum landsins og Alþingi“ færi svona með þetta. Margt var sagt af stjórnarliðum síðasta kjörtímabils um píratana og meint stjórnleysi þeirra en þetta hefðu þau aldrei leyft sér að gera.“

Þetta skrifaði Helga Vala Helgadóttir.

Eyjan er með frétt um málið:

„Sá fordæmalausi atburður gerðist á Alþingi laust fyrir miðnætti í gærkvöldi að Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, frestaði umræðu um veiðigjaldamálið og sleit þingfundi kl. 23:39 án þess að hafa til þess umboð forseta eða meirihluta forsætisnefndar. Hildur er, þrátt fyrir að vera þingflokksformaður, í forsætisnefnd Alþingis.

Fyrirhugað hafði verið að þingmenn stjórnarandstöðunnar fengu að tala um málið eitthvað fram eftir nóttu, enda virðist tjáningarþörf þeirra um málið nánast óendanleg. Hins vegar hefur komið fram að málþófsmenn vilja helst fá að stunda sitt málþóf milli kl. 10 og 16 á virkum dögum og ekki þurfa að mæta til þingfundar um kvöld og helgar.

Tveir þingmenn ríkisstjórnarmeirihlutans voru í þingsal er þetta gerðist og hafa þeir aldrei upplifað annað eins. Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingar, sagðist í samtali við Eyjuna ekki vita til þess að svona hefði áður gerst í þinginu.

„Ég var í þingsal í kvöld og man ekki eftir öðru eins, en hér hefur þingflokksformaður augljóslega tekið fram úr sér sem fulltrúi í forsætisnefnd, svo ekki sé harðar að orði kveðið. En þetta vitnar líka um það hvoru megin þau telja að völdin eigi að vera.“

Blaðamaður horfði á upptöku af síðustu mínútum þingfundarins og þar sést greinilega að þegar síðasti ræðumaður kvöldsins, Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur ræðu sína kl. 23:34, gengur Bergþór Ólason inn í mynd og upp að forsetastól og afhendir Hildi blað. Þau eiga saman orðastað. þremur mínútum síðar kemur hann aftur til forseta og þau hvíslast á. Mínútu síðar, kl. 23:38, kemur hann í þriðja sinn til Hildar og þau eiga samtal.

Sem fyrr segir er hér um fordæmalausan atburð í þingsögunni að ræða, að þingmaður minnihluta fari gegn ákvörðunum meirihluta þingsins um dagskrá og lengd þingfundar.

Með athæfi sínu hefur Hildur að líkindum sett aukna hörku í samskipti stjórnarmeirihlutans og minnihlutans á Alþingi um þinglok og afgreiðslu mála. Forvitnilegt verður að sjá hver eftirköstin verða þegar þing kemur saman kl. 10 í fyrramálið. Þá er eitt mál á dagskrá, veiðigjaldafrumvarpið, og þrýstingur á stjórnarmeirihlutann að beita meirihlutaafli sínu til að knýja fram tafarlausa atkvæðagreiðslu um málið fer mjög vaxandi, enda sýnir nýjasta skoðanakönnun Prósents að 69 prósent þjóðarinnar styðja frumvarp ríkisstjórnarinnar en einungis 17 prósent eru andvíg. Enga skoðun á málinu hafa 14 prósent kjósenda og ef aðeins er horft til þeirra sem taka afstöðu nýtur veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar stuðnings 80 prósent kjósenda,“ segir í frétt Eyjunnar.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: