- Advertisement -

Er Viðreisn á móti mannréttindum?

„Af hverju veldur það svona ofboðslegri geðshræringu í herbúðum Viðreisnar þegar menn nefna EES-samninginn á nafn í sama samhengi?“

Sigríður Á. Andersen.

Alþingi:„Fyrir nokkrum dögum tók hæstvirtur dómsmálaráðherra höndum saman með nokkrum öðrum ríkjum í Evrópu og kynnti það, í útlöndum reyndar, að hún styddi að farið yrði að huga að endurskoðun á mannréttindasáttmála Evrópu. Ástæðan: Jú, til þess að standa vörð um hagsmuni Íslands og þeirra ríkja sem hafa óskað eftir því. Mannréttindasáttmálinn væri orðinn túlkaður þannig að hann vegi að hagsmunum þessara landa, hann væri túlkaður þannig af hálfu Mannréttindadómstólsins,“ sagði Sigríður Á. Andersen þingflokksformaður Miðflokksins.

„Þýðir það að Viðreisn sé á móti mannréttindum? Ætlar Viðreisn núna að fara að vega að mannréttindum, m.a. hælisleitenda, flóttafólks og fólks sem leitar ásjár í Evrópu? Er það staðan? Mér kemur ekki til hugar að halda því fram. En ef ég væri í Viðreisn og það væri einhver annar flokkur sem hefði lagt þetta til, og stingi upp á því að endurskoða ákvæði mannréttindasáttmálans í ljósi hagsmuna Íslands, þá myndi ég einskis svífast og núa þeim hinum sama því um nasir að viðkomandi væri á móti mannréttindum. En nei, hæstvirtur dómsmálaráðherra ætlar að taka þátt í því að hrundið verði af stað endurskoðun á mannréttindasáttmálanum með hagsmuni Íslands og annarra ríkja í huga,“ sagði Sigríður og endaði ræðuna svona:

„Af hverju veldur það svona ofboðslegri geðshræringu í herbúðum Viðreisnar þegar menn nefna EES-samninginn á nafn í sama samhengi? Um að mögulega þurfi að beita ákvæðum sem EES-samningurinn sjálfur heimilar til að gæta hagsmuna Íslendinga og innviða vegna fjölgunar fólks hér á landi sem fram kemur í skýrslu hæstvirts dómsmálaráðherra sjálfs að stafi að mestu leyti, nánast öllu leyti, frá EES-svæðinu? Af hverju þessi mikla geðshræring?“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: