- Advertisement -

Eru fyrst dómsmálaráðherrar Sjálfstæðisflokksins


Það er aðeins ef innmúraður og innvígður brýtur gegn flokknum að verndin fellur. Ljósmmynd: Vísir.

Gunnar Smári skrifar:

Á bak við þetta blablabla liggur sú staðreynd að dómsmálaráðherrar Sjálfstæðisflokksins eru alltaf fyrst dómsmálaráðherrar Sjálfstæðisflokksins en dómsmálaráðherrar Íslands aðeins að hluta. Haraldur Johannessen er innmútaður og innvígður Sjálfstæðisflokksmaður og það er algjörlega útilokað að dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins áminni hann nema hann brjóti gegn flokknum. Innvígður og innmúraður má hrækja á utanflokksfólk, hrinda því, svívirða og ofsækja án þess að missa vernd flokksins. Það er aðeins ef innmúraður og innvígður brýtur gegn flokknum að verndin fellur. Það er af þessum sökum sem Sjálfstæðisflokksfólk er alltaf ónothæft til starfa í almannastofnunum eða fyrir hönd almennings, það getur ekki annað en svikið almenning og þjónað flokknum. Út á það gengur þessu flokkur.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: