Við ætlum ekki að hætta við allt sem er erfitt og gera allt fyrir alla. Við ætlum ekki að fara þessa leið Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og Framsóknar.
Kristrún Frostadóttir.
Alþingi: Kristrún Frostadóttir talaði um efnaahgsgmál á Alþingi í gær, að beiðni Guðrúnar Hafsteinsdóttur. Kristrún sagði:
„Takk fyrir þessa umræðu. Við skulum tala hreina íslensku. Vandinn á síðasta kjörtímabili var þessi: Of mikil eftirspurn, of mikil þensla í hagkerfinu sem fyrri ríkisstjórn kynti beinlínis undir með því að reka ríkið á yfirdrætti, taka lán og pumpa út peningum, allt of mikið, allt of lengi, þrátt fyrir þensluna í hagkerfinu. Þannig misstu þau stjórn á efnahagsmálunum. Verðbólgan fór upp í 10%. Vextirnir fóru upp í 9%. Það var óstjórn í ríkisfjármálum. Núna erum við að laga ríkisfjármálin.
Forseti. Við erum að laga ríkisfjármálin. Við erum að ná aftur stjórn eftir óstjórn síðustu ára með stefnufestu og með því að taka erfiðar ákvarðanir en ekki gera allt fyrir alla. Með því að innleiða stöðugleikareglu og stöðva hallareksturinn, með 100 milljarða hagræðingu í fjármálaáætlun og hallalausum fjárlögum 2027 í fyrsta skipti í tíu ár, með því að skrúfa fyrir skattaglufur og fara, já, í skynsamlega tiltekt. Við erum að hrista upp í kerfinu. Við erum að einfalda regluverk. Við erum að sameina stofnanir. Þetta eru ekki bara frasar. Það liggja fyrir fjöldamörg frumvörp um þessi mál í þinginu. Við seldum Íslandsbanka, við gerðum loksins upp skuldir ÍL-sjóðs. Bara á þessu eina ári erum við búin að minnka ríkisskuldir um 7,5% af landsframleiðslu, enda hefur ávöxtunarkrafa ríkisskuldabréfa farið lækkandi upp á síðkastið, og við erum bara rétt að byrja.

…erum við spurð af stjórnarandstöðunni á hverjum einasta degi…
Í síðustu viku kynntum við fyrsta húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar þar sem eru ýmsar aðgerðir til að draga úr þenslu og stuðla að verðstöðugleika. Strax í kjölfarið var slakað á lánþegaskilyrðum Seðlabankans. Auðvitað er enn verk að vinna og við í ríkisstjórninni tökum ábyrgð okkar alvarlega. En stóra myndin er sú að heilt yfir er staðan töluvert betri en hún var í fyrra. Verðbólgan hefur farið niður og verðbólgan mun fara niður á næstu misserum. Vextir hafa lækkað og munu væntanlega lækka enn frekar með minnkandi verðbólgu. Það gengur vel að takast á við stöðuna. Við erum að ná styrkari stjórn og við munum endurheimta jafnvægi í íslensku efnahagslífi.
Forseti. Hér á Alþingi erum við spurð af stjórnarandstöðunni á hverjum einasta degi hvort við ætlum ekki að rífa í bremsuna og breyta um stefnu, hvort við ætlum ekki að lækka skatta og auka útgjöld, eyða meira, afla minna, auka hallann. Svarið er nei. Það kemur ekki til greina. Við ætlum ekki að hætta við allt sem er erfitt og gera allt fyrir alla. Við ætlum ekki að fara þessa leið Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og Framsóknar. Við ætlum að halda áfram og gera það sem þarf með því að halda okkar striki til að koma Íslandi aftur á rétta braut.
Forseti. Auðvitað koma alltaf upp einhver áföll í atvinnulífi þjóðarinnar og það hefur gerst núna að undanförnu. Þetta eru alvarleg áföll og hugur okkar er fyrst og fremst hjá starfsfólki og stjórnendum fyrirtækja sem lenda í þrengingum af þessum toga. Almennt vil ég segja að þessi ríkisstjórn bregst ekki við með því að stíga inn í rekstur einstakra fyrirtækja. Við gerum það með almennum hætti. Við erum í góðu samtali við t.d. Þróunarfélag Grundartanga um mögulegar aðgerðir. Við höfum unnið þétt með Norðurþingi vegna stöðunnar sem þar er. Við erum að vinna að atvinnustefnu. Við erum að einfalda regluverk og við erum að höggva á hnúta í raforkumálum. Við erum í dag að sjá stórar fréttir, m.a. fyrir norðan og á norðausturhluta landsins, í orkumálum sem munu styrkja stöðuna þar verulega.
Þá skiptir máli að vera með ríkisstjórn sem er stefnuföst…
Það sem er mikilvægast, forseti, er að stjórnvöld sjái stóru myndina og meti stöðuna rétt til að bregðast við með réttum hætti. Þá skiptir máli að vera með ríkisstjórn sem er stefnuföst og staðföst; að við rjúkum ekki upp til handa og fóta heldur bregðumst við af ábyrgð og yfirvegun. Það er alltaf einhver óvissa í efnahagsmálum. Nú getur verið að hagvaxtarhorfur séu að versna en þegar slíkar breytingar verða frá mánuði til mánaðar, t.d. þegar einstök fyrirtæki lenda í vandræðum, þá er betra að Seðlabankinn bregðist við slíku en að öllum ríkisrekstrinum sé snúið við í fjárlögunum. Þess vegna höfum við einmitt Seðlabankann sem hefur mikið af tólum, ekki bara vaxtatæki, til að bregðast við svona stöðu. Ég treysti Seðlabankanum fyllilega til þess. Ef stefnir t.d. í kólnun eða samdrátt í hagkerfinu geri ég ráð fyrir að Seðlabankinn tæki á því með lækkun vaxta áður en við þurfum að gera stórvægilegar breytingar á ríkisfjármálunum til að hafa áhrif á eftirspurn í hagkerfinu.
Forseti. Ég hlakka til að hlýða á umræðuna og mun sérstaklega hlusta eftir hugmyndum sem styðja raunverulega við markmið okkar um að laga ríkisfjármálin og endurheimta jafnvægi í efnahagslífinu,“ sagði forsætisráðherra á Alþingi í gærdag.