- Advertisement -

Fær á tilfinninguna að stjórnvöldum finnist ekkert mál að skipta út eigin þjóð

Því skiptir máli að fjöldinn sem við tökum á móti sé ekki meiri en við ráðum við þannig að við hjálpum fólki í neyð en á móti göfgi þau okkar samfélag.

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir.

Alþingi: Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir Miðflokki sagði eftirfarandi á Alþingi:

„Ég upplifi að stjórnarliðar séu farnir að tala um líkt þenkjandi þjóðir í flestum viðtölum og er það svo sem ágætt. Það er yfirleitt rætt í samhengi við lýðræði, fullveldið, viðskipti, samskipti, jafnrétti og frelsi, allt sem við sem þjóð erum stolt af að standa fyrir og viljum varðveita. Því skýtur það skökku við að stór hluti þeirra sem við höfum veitt hér hæli undanfarin ár og eru ekki hluti þeirra sem koma gegnum sérheimild vegna fjöldaflótta koma frá afar ólíkt þenkjandi þjóðum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Maður fær á tilfinninguna að stjórnvöldum finnist ekkert mál að skipta út eigin þjóð fyrir einstaklinga frá ólíkt þenkjandi þjóðum, alla vega miðað við áhugaleysi og sleggjudóma í garð þeirra sem vilja hafa stjórn á landamærum, stjórn á hverjum við bjóðum að setjast hér að og að skilyrðið sé að aðlagast okkar gildum en ekki öfugt. Danir hafa haldið úti afbrotatölfræði og þar má sjá að einstaklingar frá ólíkt þenkjandi þjóðum eru hátt í þrisvar sinnum líklegri til að brjóta af sér en innfæddir Danir. En önnur kynslóð innflytjenda frá sömu löndum er hátt í fjórum sinnum líklegri til að brjóta af sér.

Þá erum við komin með aðra breytu sem bætist við; félagsleg vandamál og fátækt. Því skiptir máli að fjöldinn sem við tökum á móti sé ekki meiri en við ráðum við þannig að við hjálpum fólki í neyð en á móti göfgi þau okkar samfélag. Mikilvægt er að setja skilyrði um ákveðna aðlögun þegar kemur að veitingu verndar, því að ef það er ekki vilji til að aðlagast og virða þau gildi sem við sem þjóð höfum þá kljúfum við þjóðina og jafnrétti og frelsi mun fljótt mega sín lítils.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: