
Ég hvet ríkisstjórnina til dáða í að gera breytingar hvað þetta varðar. Viðskiptaráð Íslands á ekki að þurfa á ríkisstuðningi að halda.
Kratinn:
Kristján Þórður Snæbjarnarson, þingmaður Samfylkingarinnar, fékk nýverið svar við fyrirspurn á þingi um hvað fyrirtæki að hluta eða öllu leyti í eigu ríkisins greiða árgjöld til Viðskiptaráðs Íslands, Samtaka atvinnulífsins og félaga sem tengjast þeim síðastliðinn áratug. Samkvæmt svarinu nemur greiðslan alls 245 milljónum króna árlega og blokkin hefur fengið alls um tvo milljarða króna í greiðslur frá fyrirtækjum hins opinbera frá árinu 2015. Svarið hefur vakið töluverða athygli enda algengt að Viðskiptaráð og Samtök atvinnulífsins gagnrýni harðlega allskyns styrkjagreiðslur úr opinberum sjóðum.
Kristján Þórður ræddi þessa stöðu í þingsal í dag. Þar sagði hann að af þeirri upphæð sem runnið hefur til hagsmunasamtaka fyrirtækja í landinu undanfarin áratug hafi 78 milljónir króna runnið til Viðskiptaráðs Íslands. „Ég velti fyrir mér hver tilgangurinn sé með slíkri aðild fyrir ríkisfyrirtæki. Er ekki rétt að endurskoða aðild sem þessa? Ég hvet ríkisstjórnina til dáða í að gera breytingar hvað þetta varðar. Viðskiptaráð Íslands á ekki að þurfa á ríkisstuðningi að halda. Það munar um þessa fjármuni sem hæglega hefði verið hægt að nýta á annan og skynsamlegri hátt til þess að efla og bæta þjónustu við venjulegt vinnandi fólk í landinu.“
Hann setti þessa nýtingu á opinberu fé í samhengi við þá forgangsröðun sem ráðist hefur verið í með mikilli tiltekt ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur í ríkisfjármálunum. „Unnið er að forgangsröðun í nýtingu fjármagns til að styrkja þjónustu við fólkið. Forgangsröðun þar sem okkar mikilvægustu innviðir eru styrktir. Forgangsröðun þar sem áhersla er á sjálfbæran vöxt til að standa undir enn meiri velferð. Í þessum efnum skiptir öllu máli að ríkið bíði ekki eftir því að staðan batni og voni að þetta reddist. Skýr skilaboð um hlutverk og ábyrgð hins opinbera skipta sérstaklega miklu máli. Þau skilaboð tökum við alvarlega og erum sannarlega að koma hreyfingu á hlutina.“