Alþingi: Alþingi á eftir að afgreiða frumvarp um styrk til nokkurra fjölmiðla. Þar láta hæst Mogginn og Sýn. Þau fyrirtæki hafa til þess fengið samtals helming þeirra peninga sem dreift er til fjölmiðlanna. Nú verður hámarksframlagið lækkað í 44 prósent og skipta „risarnir“ því jafnt á milli sín. 22 prósent á haus.
Það er annað og alvarlegra en skipting peninganna. Það er þetta er aldrei afgreitt nema til eins árs í senn. Sem verður til þess að fjölmiðlar geta ekki gert ráð fyrir að fá styrki og alls ekki hversu háa. Með þessu er ríkisvaldið að tryggja að fjömiðlarnir þurfa að banka upp á hverju ári með betlistaf í hendi. Hangandi á biðstofunni.
Diljá Mist Einarsdóttir sagði í sinni ræðu: „Ef niðurstaða Alþingis verður sú að samþykkja þetta frumvarp í núverandi mynd eru þau skilaboð sem þingið sendir fjölmiðlum í raun sú að fjölmiðlum geti hefnst fyrir að veita stjórnvöldum aðhald. Það eru varhugaverð skilaboð.“
Og þannig hefur þetta verið frá upphafi. Þingmeirihluti hverju sinni hefur þetta í sínum höndum á hverju ári. „Verið þæg ellegar við skúrum fyrir kranana.“